Kvika vill kaupa Netgíró

Áætlað er að ganga frá kaupsamningi innan þriggja mánaða en ef kaupin ganga í gegn mun Kvika vera eini eigandi félagsins.

kvika banki
Auglýsing

Kvika hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á 80 pró­sent hlut í Net­gíró en fyrir á bank­inn um 20 pró­sent hlut í félag­inu og verður því eini eig­andi þess ef kaupin ná fram að ganga. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu bank­ans til Kaup­hall­ar­inn­ar.

Vilja­yf­ir­lýs­ingin er gerð með ýmsum fyr­ir­vörum, svo sem um sam­þykki stjórnar Kviku, nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar og sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Áætlað er að ganga frá kaup­samn­ingi innan þriggja mán­aða, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

„Kaupin hafa ekki áhrif á afkomu­spá bank­ans fyrir árið í ár en stefnt er að því að kaupin hafi jákvæð áhrif á afkomu bank­ans til lengri tíma.“

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að kaup á Net­gíró séu í sam­ræmi við stefnu bank­ans að nýta tækni­lausnir til þess að nútíma­væða fjár­mála­þjón­ustu. Net­gíró hafi lagt áherslu á að þróa láns­hæf­is­möt ásamt því að bjóða rað­greiðslur með ein­földum hætti. Áður hafi bank­inn sett fjár­tækni­þjón­ust­una Auði á lagg­irnar með góðum árangri.

Kvika hafi átt far­sælt sam­starf við Net­gíró á und­an­förnum árum, meðal ann­ars varð­andi fjár­mögnun á kröfusafni félags­ins. Kaupin geri bank­anum kleift að efla enn frekar sam­starfið við Net­gíró sem leiði til auk­innar skil­virkni og hag­ræð­ingar hjá báðum aðil­um. Net­gíró er nú á tæp­lega 3.000 sölu­stöðum á land­inu og yfir 68.000 ein­stak­lingar eru í við­skiptum við fyr­ir­tæk­ið.

Mar­inó Örn Tryggva­son, for­stjóri Kviku, segir í til­kynn­ing­unni að þau sjái tæki­færi í Net­gíró til fram­tíðar enda sé félagið með háa mark­aðs­hlut­deild og hjá því starfi öfl­ugir og reynslu­miklir starfs­menn. „Vænt­an­leg kaup bank­ans á Net­gíró falla vel að stefnu bank­ans um þróun fjár­mála­þjónstu byggða á hag­kvæmum tækni­lausn­um. Með sterka inn­viði og fjár­hags­legan styrk bank­ans á bak­við sig teljum við félagið vera í góðri stöðu til að sækja fram á næstu miss­er­um.“

Skorri Rafn Rafns­son, stjórn­ar­for­maður Alva Hold­ing ehf., móð­ur­fyr­ir­tækis Net­gíró, segir að vilja­yf­ir­lýs­ingin sé mikið gleði­efni og um leið stað­fest­ing á því „sem við hjá Net­gíró höfum unnið að frá stofnun félags­ins. Afburða starfs­fólk, skýr fram­tíð­ar­sýn og mikil vinna hefur skapað fyr­ir­tæk­inu þann sess sem það nú skip­ar. Við vitum að framundan eru spenn­andi tímar og mikil tæki­færi til vaxt­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent