„Ótrúleg ósvífni – Þetta verður ekki liðið!“

Forseti ASÍ segir uppsagnir hjá Icelandair vanvirðingu gagnvart starfsfólki fyrirtækisins. Þau hjá ASÍ leiti allra leiða til þess að koma í veg fyrir þetta.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Auglýsing

„Við erum að leita allra leiða til þess að koma í veg fyrir þetta. Þetta er ótrú­leg ósvífni af hendi Icelanda­ir. Van­virð­ing gagn­vart starfs­fólki og van­virð­ing gagn­vart þeim reglum sem gilda á íslenskum vinnu­mark­aði og þeirra sem ganga til samn­inga.“

Þetta segir Drífa Snædal, for­seti ASÍ, í sam­tali við Kjarn­ann þegar hún er innt eftir við­brögðum við því að stjórn­endur Icelandair hafi ákveðið að hætta við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og leita eftir samn­ingum við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði um fram­tíð­ar­kjör örygg­is- og þjón­ustu­liða hjá félag­inu. Öllum flug­freyjum og flug­þjónum verður sagt upp og þess í stað eiga flug­menn að taka að sér störf örygg­is­liða um borð tíma­bund­ið.

Drífa segir að sér sýn­ist stjórn­endur Icelandair ætli að þrýsta niður launum ein­hliða. „Þeir þurfa að svara því við hverja þeir ætla þá að semja því að það eru sann­ar­lega ekki flug­freyj­ur.“

Auglýsing

Hún deildi frétt um málið á Face­book í dag og sagði með færsl­unni: „Ótrú­leg ósvífni. Þetta verður ekki lið­ið!“

Ótrú­leg ósvífni. Þetta verður ekki lið­ið!

Posted by Drífa Snæ­dal on Fri­day, July 17, 2020


For­stjór­inn segir ljóst að sam­talið fari ekki lengra

­Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, sagði í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu að það hefði lagt allt kapp á að ná samn­ingum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og „lagt í þeim til­gangi fram fjöl­mörg til­boð sem öllum hefur verið hafn­að. Með þeim kjara­samn­ingi sem felldur var af með­limum FFÍ gengum við eins langt og mögu­legt var til að koma til móts við samn­inga­nefnd FFÍ. Sá samn­ingur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flug­freyja og flug­þjóna sem þekkj­ast á alþjóða­mark­aði.

Tím­inn er á þrotum og við neyð­umst til að leita ann­arra leiða. Þessi ákvörðun er mér afar þung­bær en nauð­syn­leg þar sem ljóst er að sam­talið milli félag­anna tveggja fer ekki lengra. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórnum félag­inu að tryggja rekstur þess til fram­tíðar og því miður sjáum við ekki annan kost í stöð­unni en að fara þessa leið. Það er sárt að vera í þess­ari stöðu gagn­vart afburða­sam­starfs­fólki sem hefur staðið vakt­ina með félag­inu til fjölda ára, svo eftir hefur verið tek­ið,“ sagði hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent