Síminn og Gagnaveita Reykjavíkur (GR) rituðu undir samkomulag í morgun þess efnis að Síminn leigi aðgang að ljósleiðarakerfi GR. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Þannig mun Síminn í framtíðinni geta aukið þjónustu til viðskiptavina sinna yfir ljósleiðaranet GR. Hjá báðum aðilum er vinna hafin við tæknilegan undirbúning og stefnt verður að því að þjónusta Símans verði aðgengileg á ljósleiðara GR snemma á næsta ári,“ segir í tilkynningunni.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, segist fagna því að hafa náð þessum samningi við GR. „Með honum fjölgum við mögulegum aðgangsleiðum neytenda á suðvesturhorninu að fjölbreyttri þjónustu Símans. Hið víðfeðma ljósleiðaranet GR er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið það eina sem við höfum ekki nýtt til að sinna viðskiptavinum okkar með beinum hætti. Nú breytist það blessunarlega,“
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, segist einnig fagna því að fá þjónustur Símans á ljósleiðarakerfi GR sem muni ná til 107 þúsund heimila í lok árs og um leið auki þau val neytenda. Ísland sé mjög framarlega í notkun á ljósleiðara og þessi samningur muni styðja enn frekar við stefnu stjórnvalda um nýtingu hans.