Samtals voru 97 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í júní síðastliðnum. Af þeim voru 48 með virkni árið 2019, það er annaðhvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar í morgun.
Af 546 fyrirtækjum sem urðu gjaldþrota á fyrri helmingi ársins 2020 voru 222 virk á fyrra ári, sem er 23 prósent fleiri en þau voru á fyrri helmingi ársins 2019. Þar af voru 65 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 41 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, 49 í einkennandi greinum ferðaþjónustu og 67 í öðrum atvinnugreinum.
Fyrirtæki sem urðu gjaldþrota á fyrri helmingi ársins voru með 1991 launþega að jafnaði árið 2019 og um 18,9 milljarða króna veltu. „Þetta eru mun lægri tölur en fyrir gjaldþrot á fyrri helmingi ársins 2019, sem skýrist af gjaldþroti WOW Air í mars 2019,“ segir í í tilkynningunni.
Samkvæmt gögnum á vef Hagstofunnar voru nýskráningar einkahlutafélaga í júní 225 og fjölgaði um 34 prósent frá júní 2019.