Fyrsta dag ársins bjuggu 5,9 prósent landsmanna í strjálbýli samkvæmt endurskoðuðum gögnum Hagstofu Íslands um þéttbýlisstaði og byggðakjarna. Með strjálbýli er átt við sveit eða byggðakjarna með færri en 200 íbúa. Fleiri karlar en konur bjuggu í strjálbýli í byrjun ársins þótt munurinn sé ekki mikill. Þannig bjuggu 11.748 karlar í strjálbýli eða 6,3 prósent af öllum körlum en 9.885 konur sem eru 5,6 prósent af öllum konum.
Í samantekt hagstofunnar kemur fram að þéttbýlisstaðir með 200 eða fleiri íbúa hafi verið 63 í upphafi árs. Langstærsti þéttbýlisstaðurinn var Stór-Reykjavíkursvæðið með 228.418 íbúa en þar er samfelld byggð frá Hafnarfirði norður í Mosfellsbæ. Næst stærsta þéttbýlið var í Keflavík og Njarðvík, þar sem bjuggu 19.311 íbúar, en á Akureyri og nágrenni bjuggu 18.893 íbúar.
Tíu staðir sem flokkast sem strjálbýli höfðu í upphafi árs innan við 100 íbúa hver og samanlagt bjuggu í þeim 705 manns.