Tíu smitast hér á landi síðustu daga

21 einstaklingur er með virkt kórónusmit á landinu sem þýðir að viðkomandi eru smitandi og í einangrun. Tíu þeirra smituðust hér á landi. Sex smit greindust í gær. Samskiptastjóri almannavarna segir gríðarlega mikilvægt að sinna persónulegum sóttvörnum.

Landspítalinn
Auglýsing

Í gær greindust sex ný virk smit af kór­ónu­veirunni á Íslandi. 21 er því nú með virkt smit, þar af eru tíu inn­an­lands­smit. Allir hinna sýktu eru í ein­angrun og 173 eru komnir í sótt­kví.



Jóhann K. Jóhanns­son, sam­skipta­stjóri almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, segir í sam­tali við Kjarn­ann að nú sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að halda áfram að sinna per­sónu­legum sótt­vörn­um. Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hafi alltaf varað við því að hóp­sýk­ingar gætu komið upp í kjöl­far til­slak­ana á tak­mörk­un­um.

Í gær greindust sex ný virk smit. Þrjú höfðu greinst í fyrra­dag.  Jóhann segir smitrakn­ingu að mestu lok­ið.

Auglýsing


Á föstu­dag greind­ist ein­stak­ling­ur, sem er með íslenska kenni­tölu og því tengsla­net hér á landi, með virkt smit. Sá hafði hins vegar komið til lands­ins á erlendu auð­kenni, þannig hafi hann flokk­ast sem ferða­maður við kom­una og ekki fengið boð um seinni sýna­töku eins og Íslend­ingar og aðrir búsettir hér eiga að fá.



Íslensk erfða­grein­ing er að rað­greina sýnin og í tveimur til­vikum hefur upp­runi smit ekki enn feng­ist stað­fest­ur. Í gær var upp­lýst að ÍE hefði fundið nýtt afbrigði af veirunni í nýj­ustu sýn­unum sem þykir renna stoðum undir að þau hafi borist hingað frá útlönd­um.

Hand­þvottur og sótt­hreinsun

Almanna­varnir brýna fyrir fólki að halda áfram ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum og er góður hand­þvottur og sótt­hreins­un lyk­il­at­riði í því sam­bandi.

Helstu ein­kenni Covid-19 sýk­ingar minna á venju­lega flensu;

• Hiti

• Hósti

• Bein- og vöðva­verkir

• Þreyta

• Melt­ing­ar­ein­kenni (kvið­verkir,ó­gleð­i/­upp­köst, nið­ur­gang­ur) eru ekki mjög áber­andi með COVID-19 en eru þó þekkt.

• Breyt­ingu, eða tapi á bragð- og lykt­ar­skyni er lýst hjá 20–30 pró­sent sjúk­linga.

­Sýni ein­stak­lingur ein­kenni eða vakni grunur um smit í nærum­hverfi skal hinn sami halda sig heima, hafa sam­band við sína heilsu­gæslu eða í gegnum net­spjall á heilsu­ver­a.is og óska eftir sýna­töku. Einnig er hægt að hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700.

Komi upp smit er smitrakn­ing lyk­il­at­riði til þess að kanna ­mögu­lega útbreiðslu. Því minna almanna­varnir og land­læknir á mik­il­vægi þess að ­fólk sæki Rakn­ing C-19 appið í síma sína. Slíkt getur auð­veldað smitrakn­ingu.

Mik­il­vægar upp­lýs­ingar um Covid-19 má finna á vef­síð­unni www.covid.is

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent