39 staðfest smit – aðgerðir hertar

Staðfest virk smit af kórónuveirunni eru nú orðin 39 hér á landi. Einn hefur verið lagður inn á sjúkrahús með COVID-19. Tilfellum af COVID-19 hefur því fjölgað um tíu síðan í gær.

sólarlag
Auglýsing

Stað­fest virk smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 39 hér á landi. Einn hefur verið lagður inn á sjúkra­hús með COVID-19. Til­fellum af COVID-19 hefur því fjölgað um tíu síðan í gær.

Í gær voru stað­fest smit 28 og af þeim höfðu átján ein­stak­lingar smit­ast hér á land­i. 

Í dag eru 215 manns komin í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 187.

Auglýsing

Kamilla Sig­ríður Jós­efs­dótt­ir, stað­geng­ill sótt­varna­lækn­is­, ­sagði á blaða­manna­fundi í dag að stór hóp­sýk­ing væri nú á suð­vest­ur­horni lands­ins sem hafi fimm aðskilda anga sem þó allir tengj­ast. 24 ein­stak­lingar telj­ast til þeirrar hóp­sýk­ing­ar. Þá eru fjórir ein­stak­lingar í annarri hóp­sýk­ingu.

Mjög margir af þeim sem greindust í gær voru í sótt­kví en ekki all­ir. Því er ekki vitað hversu margir endi í sótt­kví eftir dag­inn.

Ýmsar sam­komu­tak­mark­anir munu taka gildi á hádegi á morg­un. Þá mega aðeins 100 manns koma saman í stað 500 nú. Tveggja metra reglan verður tekin upp aftur og nú sem skil­yrði. Verði henni ekki við­komið skal fólk bera and­lits­grímur sagði heil­brigð­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag. 

Alma Möller land­læknir sagði að til þess að skimun á landa­mærum virki þurfi að skerpa á tvennu: Fólk verði algjör­lega að halda sig til hlés þar til nið­ur­stöður úr fyrri skimun hafa borist. „Við biðjum alla, ­meðal ann­ars aðila í ferða­þjón­ustu að þetta sé virt.“

Í öðru lagi fór hún yfir mik­il­vægi heim­komusmit­gát­ar. „Það er afar mik­il­vægt að fólk virði hana í hví­vetna,“ sagði Alma og benti á að ef það yrði ekki gert gæti þurft að breyta henni yfir í sótt­kví. Á meðan fólk bíður eftir nið­ur­stöðum úr seinni sýna­töku á það að halda sig frá vinnu, ekki fara á manna­mót eða í veislur ef þar eru fleiri en tíu manns. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent