Icelandair Group segir að samningaviðræður við þá hagaðila sem félagið á eftir að semja við séu vel á veg komnar og að félagið hafi undirritað samninga við flesta kröfuhafa og náð samkomulagi í meginatriðum við þá sem eftir eru. „Félagið gerir ráð fyrir að þeir samningar verði undirritaðir í næstu viku. Samningarnir eru háðir því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár og geri samning um lánalínu með ríkisábyrgð. Samningaviðræður við kröfuhafa hafa miðað að því að laga afborganir að væntu sjóðsstreymi frá rekstri. Þessir samningar tryggja nauðsynlegan sveigjanleika til að geta byggt starfsemi félagsins upp hratt og örugglega á ný þegar markaðir opnast og eftirspurn fer að aukast.“
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands sem send var út seint á föstudagskvöld. Ekki er tilgreint við hvaða kröfuhafa Icelandair hefur undirritað samninga við.
Ætla að sækja á þriðja tug milljarða í hlutafé í ágúst
Samningar við kröfuhafa Icelandair eru forsenda þess að félagið getið ráðist í hlutafjárútboð sem á að safna 200 milljónum dala, um 27 milljörðum króna á núvirði í nýtt hlutafé. Upphaflega átti hlutafjárútboðið að fara fram í júnímánuði en samningar við kröfuhafa náðust ekki fyrir þann tíma. Því var útboðinu frestað fram í ágúst og sagt að samningar við kröfuhafa þyrftu að nást fyrir þann tíma. Aðallega er horft til lífeyrissjóða, sem er í dag stærstu hluthafar Icelandair, sem þátttakenda í væntu hlutafjárútboði.
Núverandi eign hluthafa mun fara niður í 15,3 prósent við vænta hlutafjáraukningu, takist að selja hana alla.
Ekki búið að semja við Boeing
Í tilkynningunni sem send var út í gærkvöldi segir enn fremur að unnið hafið verið að útfærslu á láni með ríkisábyrgð með íslenskum stjórnvöldum, Íslandsbanka og Landsbankanum og að viðræður séu langt komnar. „Eins og fram hefur komið, verður lánafyrirgreiðsla stjórnvalda meðal annars háð því að félagið nái markmiðum sínum um öflun nýs hlutafjár. Þá eru samningaviðræður við Boeing vel á veg komnar en viðræðurnar snúast um frekari bætur vegna kyrrsetningar MAX vélanna og að breytingar verði gerðar á áætlun um framtíðarafhendingu MAX flugvéla.“
Þegar allir samningar liggja fyrir ætlar Icelandair að birta fjárfestakynningu með ítarlegum upplýsingum fyrir fjárfesta og þátttakendur í fyrirhuguðu hlutafjárútboði. „Í kjölfarið verður skráningarlýsing birt en gert er ráð fyrir að hlutafjárútboði muni ljúka í ágúst. Upplýsingar um fjölda útgefinna hluta og gengi verða birtar um leið og ákvörðun stjórnar félagsins um þau atriði liggur fyrir.“
Félagið hefur nú þegar undirritað nýja langtímasamninga við stéttarfélög flugmanna, flugfreyja og flugþjóna og flugvirkja.