Rykið fangað á Raufarhöfn

Ísland er ein helsta uppspretta ryks á norðurhveli jarðar. Stór hluti af því ryki sem hér verður til berst norður yfir landið og norður í höf, til dæmis alla leið að Svalbarða.

Ryk í andrúmsloftinu getur veitt verðmætar upplýsingar sem nýtast í rannsóknum á loftslagsbreytingum.
Ryk í andrúmsloftinu getur veitt verðmætar upplýsingar sem nýtast í rannsóknum á loftslagsbreytingum.
Auglýsing

Rann­sókn á áhrifum ryks á lofts­lagið fór form­lega af stað þann 17. júlí síð­ast­lið­inn á Rauf­ar­höfn þegar settir voru upp ryk­mælar á vegum vís­inda­manna við háskól­ann í Darm­stadt í Þýska­land­i. 

Upp­setn­ing ryk­mæl­anna er liður í hinu fjöl­þjóð­lega HiLDA verk­efni sem snýst um að rann­saka lofts­lags­breyt­andi áhrif ryks á norð­ur­slóð­um. Margt er enn á huldu um áhrif ryks­ins og þátt þess í spálík­önum um lofts­lags­breyt­ingar og standa vonir til þess að með ryk­mæl­ing­unum verði hægt að svara fleiri spurn­ingum um áhrif­in.



Þekkt er að ryk þyrl­ast upp í eyði­mörkum á suð­ur­hveli jarðar en færri vita að Ísland er ein helsta upp­spretta ryks á norð­ur­hveli jarð­ar. Þetta hefur vakið athygli þýskra vís­inda­manna sem nú hafa komið fyrir mælum til að safna ryki. Þetta eru þó ekki fyrstu mæl­arnir hér á landi en íslenskir vís­inda­menn hafa einnig staðið að rann­sóknum á ryk­i. 

Auglýsing

Kanna bæði upp­runa og enda­stöð ryks­ins

Þremur rykmælum var komið fyrir nyrðra á dögunum en hér sjást vísindamenn að störfum við að koma þeim upp og stilla þá.

Áhrif ryks á norð­ur­slóðum eru talin van­greind í spálík­önum um lofts­lags­breyt­ing­ar. Því er talið brýnt að koma upp mæli­stöðvum eins og þeirri sem nú hefur verið sett upp á Rauf­ar­höfn. 



Ryk sem verður til hér á landi er talið að ber­ist alla leið á Sval­barða, en þar verður einnig komið upp ryk­mælum en hug­myndin er að rekja bæði upp­runa ryks­ins og enda­punkt.



Þrír mis­mun­andi ryk­mælar voru settir upp við Rauf­ar­höfn og munu þeir safna ryk­sýnum í allt að tvö ár, segir í frétt á vef Rann­sókna­stöðv­ar­innar Rifs en það eru starfs­menn Rifs munu sjá um sjálfa sýna­tök­una.

Starfs­menn Rifs sjá fengu verk­lega kennslu í notkun ryk­mæl­anna hjá vís­inda­mann­inum Kon­rad Kandler sem leiðir verk­efnið þegar mæl­unum var komið fyrir á dög­un­um. 

Rann­sókna­stöðin Rif er sjálfs­eign­ar­stofnun sem hefur til umráða jörð­ina Rif, nyrstu jörð á Ísland­i. Frá stofnun 2014 hefur Rif unnið að því að skapa vett­vang á Rauf­ar­höfn og Mel­rakka­sléttu til viða­mik­illar vökt­unar á vist­kerfi svæð­is­ins, en Mel­rakka­sléttan er aðgengi­leg­asta svæði Íslands sem skil­greint er sem heim­skauta­svæði. Rif er í sam­starfi við fjöl­margar rann­sókna­stofn­an­ir, bæði inn­lendar og erlend­ar, og stefnir að því mark­miði að Mel­rakka­slétta verði einn helsti vett­vangur Íslend­inga í rann­sóknum á vist­kerfi norð­ur­slóða og áhrifum lofts­lags­breyt­inga á það.  

Vöktun og rann­sóknir hingað til hafa einkum beinst að fugla­lífi, gróð­ur­fari og smá­dýrum en árið 2020 hófst einnig reglu­bundin vöktun á ferskvatni á Mel­rakka­sléttu. Einnig má nefna að sett var upp veð­ur­stöð á landi Rifs árið 2018, í sam­starfi við m.a. Veð­ur­stofu Íslands­. Verk­efni Rifs eru því afar fjöl­breytt og hafa ryk­mæl­ingar nú bæst á verk­efna­list­ann.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent