Fasteignaverð hækkar vegna minna framboðs

Fasteignaviðskipti voru mikil og verð hækkaði hratt á höfuðborgarsvæðinu í sumar, en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telur að búast megi við miklum verðhækkunum í ljósi minnkandi framboðs á fasteignum til sölu.

img_4557_raw_0710130526_10191295274_o.jpg
Auglýsing

Fast­eigna­mark­að­ur­inn hefur verið líf­legur í sum­ar, en mán­að­ar­leg verð­hækkun fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki verið jafn­mikil í rúm þrjú ár og hún var milli júní- og júlí­mán­að­ar. Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun segir verð­hækk­an­irnar vera í ljósi minnk­andi fram­boðs íbúða til sölu, en búast megi við verð­hækk­unum á meðan eft­ir­spurnin er jafn­mikil og nú. 

Sam­kvæmt nýj­ustu tölum Þjóð­skrár hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 1,2 pró­sent milli júní- og júlí­mán­að­ar. Sams konar verð­hækkun hefur ekki verið jafn­mikil síðan í maí 2017, en þá hafði vísi­talan hækkað um 1,8 pró­sent frá mán­uð­inum á und­an, líkt og sést á mynd­inni hér að neð­an. 

Hækkun íbúðaverðs milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu hefur verið hófleg á síðustu þremur árum.

Vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur einnig áfram að hækka eftir að hafa tekið skarpa dýfu síð­asta vetur og vor, en hún er núna á svip­uðum slóðum og hún var við árs­lok í fyrra. 

Þriðji umfangs­mesti mán­uð­ur­inn í fimm ár

Sam­kvæmt frétt Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar stað­festa nýju tölur Þjóð­skrár mikil umsvif á fast­eigna­mark­aði, en fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga ríf­lega tvö­fald­að­ist á milli júní og júlí. Ef litið er til veltu­talna var júlí þriðji umfangs­mesti mán­uð­ur­inn á fast­eigna­mark­aði í fimm ár, eða frá því í júlí 2015. 

Auglýsing

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans gerði aukin umsvif á fast­eigna­mark­aði einnig að umfjöll­un­ar­efni í Hag­sjá sinni í gær, en hún telur lík­legt að um ein­hverja tíma­gjöf sé að ræða þar sem fáum kaup­samn­ingum var þing­lýst í mán­uð­unum á und­an.  Þó telur bank­inn það vera ljóst að fast­eigna­mark­að­ur­inn sé líf­legur um þessar mundir þrátt fyrir veiru­far­aldur og efna­hags­legar afleið­ingar hans. 

Verð­hækk­anir í ljósi minna fram­boðs

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun telur minnk­andi fram­boð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera útskýr­ingu á umræddum verð­hækk­un­um, en sam­kvæmt síð­ustu mán­að­ar­skýrslu stofn­un­ar­innar voru um 1.700 íbúðir til sölu í júlí­mán­uði á meðan þær voru um 2.000 í maí síð­ast­liðn­um. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur íbúðum til sölu einnig fækkað um 15% frá því um miðjan maí en ann­ars staðar á lands­byggð­inni hefur fækk­unin numið um 8%.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent