Heimavellir hf. hafa farið fram á það við Kauphöll Íslands að skráð hlutabréf í félaginu verði tekin úr viðskiptum samkvæmt erindi sem sent var á Kauphöllina fyrr í dag, þann 25. ágúst 2020.
Norska félagið Fredensborg AS gerði yfirtökutilboð í Heimavelli í mars og þegar því lauk átti félagið 99,45 prósent í Heimavöllum þegar búið var að leiðrétta fyrir eigin hlutum.
Verðið var 1,5 krónur á hlut og því hljóðaði yfirtökutilboðið í heild sinni upp á 17 milljarða króna. Alls tóku 242 hluthafar tilboðinu. Í kjölfarið var innlausnarrétti beitt þar sem verðið var hið sama og bauðst í yfirtökutilboðinu, eða 1,5 krónur.
Heimavellir er stærsta einkarekna leigufélag landsins með um tvö þúsund íbúðir í rekstri á höfuðborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn, Grindavík og Reykjanesbæ.
Reyndu að afskrá félagið í fyrra
Lykilhluthafar Heimavalla reyndu að afskrá félagið í fyrra eftir að illa gekk að fá stóra fagfjárfesta á borð við lífeyrissjóði til að fjárfesta í því og eftir að félaginu mistókst að endurfjármagna sig í takti við fyrri áætlanir sem áttu að losa það undan arðgreiðsluhömlum.
Markavirði Heimavalla er í dag er 16,4 milljarðar króna og hækkaði umtalsvert framan af ári.
Eigið fé félagsins, munurinn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða rúmlega 20 milljarðar króna miðað við síðasta birta uppgjör.
Í október í fyrra hófu Heimavellir umfangsmikla áætlun um endurkaup á eigin bréfum.
Heimavellir töpuðu 476 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2020. Eigið fé félagsins var 19,5 milljarðar króna í lok júnímánaðar.