Martin Eyjólfsson tekur við stöðu ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins af Sturlu Sigurjónssyni þann 1. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands. Martin er nú um mundir skrifstofustjóri alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins en hann hóf störf í utanríkisþjónustunni árið 1996. Í störfum sínum í utanríkisþjónustunni hefur Martin meðal annars gegnt embætti sendiherra Íslands í Þýskalandi.
Í tilkynningunni segir að Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hafi ákveðið breytingar á yfirstjórn utanríkisráðuneytisins og flutninga á forstöðumönnum sendiskrifstofa. Breytingarnar feli ekki í sér skipun nýrra sendiherra heldur sé um flutninga núverandi sendiherra að ræða.
Fráfarandi ráðuneytisstjóri, Sturla Sigurjónsson, verður sendiherra með aðsetur í Lundúnum 15. nóvember næstkomandi. Núverandi sendiherra í Lundúnum, Stefán Haukur Jóhannesson, verður sendiherra Íslands í Tókýó þann 1. janúar næstkomandi í stað Elínar Flygenring sem kemur til starfa í utanríkisráðuneytinu um áramótin.