Fyrrverandi framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn sest í forstjórastólinn hjá Torgi

Björn Víglundsson hefur verið ráðinn forstjóri útgáfufélags Fréttablaðsins og tengdra miðla frá og með byrjun næsta mánaðar.

Björn Víglundsson.
Björn Víglundsson.
Auglýsing

Björn Víg­lunds­­son hefur verið ráð­inn for­­stjóri Torgs ehf., út­­gáfu­­fé­lags Frétta­­blaðs­ins, DV, Hring­brautar og tengdra miðla. Hann tekur við starf­inu af Jóhönnu Helgu Við­ar­s­dóttur sem verið hefur for­­stjóri fé­lags­ins og sinnt stjórn­un­ar­hlut­verki tengt miðlum þess frá árinu 2016. Björn tekur við starf­inu 1. sept­em­ber.

Björn var áður fram­­kvæmda­­stjóri miðla hjá Sýn og hafði þar meðal ann­ars það hlut­verk að leiða sam­þætt­ingu fjöl­miðla­hluta Sýnar við aðrar ein­ingar félags­ins í kjöl­far þess að þær voru keyptar síðla árs 2017. Hann var hluti af þeirri fram­kvæmda­stjórn Sýnar sem var sagt upp störfum í byrjun árs 2019. Und­an­farið hefur hann stafað sem fram­­kvæmda­­stjóri Iceland Tra­vel. 

Í frétt á vef Frétta­blaðs­ins segir að Jóhanna hafi talið að nú væri tíma­bært að breyta til og hverfa til ann­arra verk­efna. 

Torg ehf. tap­aði 212 millj­­ónum króna á síð­­asta ári eftir að hafa skilað 39 millj­­óna króna hagn­aði árið 2018. Rekst­­ar­n­ið­­ur­­staða félags­­ins (EBIT­DA) fyrir fjár­­­magns­­gjöld, afskriftir og skatta var nei­­kvæð um 59 millj­­ónir króna, en afskriftir námu alls 138 millj­­ónum króna.

Auglýsing
Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins um upp­gjörið sagði að kostn­aður vegna sam­ein­ingar við sjón­­varps­­stöð­ina Hring­braut og DV og tengda miðla hafi allur verið færður til gjalda á síð­­asta ári. Rekstr­­ar­­tekjur Torgs voru 2,3 millj­­arðar króna en höfðu verið 2,6 millj­­arðar króna árið áður og dróg­ust saman um yfir tíu pró­­sent milli ára. Hjá Torgi starfa um 100 manns.

Félag í eigu Helga Magn­ús­­­son­­­ar, fjár­­­­­festis og fyrr­ver­andi stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns Líf­eyr­is­­­sjóðs verzl­un­ar­manna, hefur keypti helm­ings­hlut í Torgi um mitt ár í fyrra. Í októ­ber keyptu Helgi og sam­­starfs­­menn hans hinn helm­ing­inn auk þess sem sjón­­varps­­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­­ur­inn. Hún hafði þá verið rekin í umtals­verðu tapi og var skil­­greind sem á fallandi fæti.

Helgi átti eftir það 82 pró­­sent í Torgi en aðrir eig­endur eig­anda útgáfu­­­fé­lags­ins, félags­­­ins HFB-77 ehf., eru Sig­­­urður Arn­gríms­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­skipta­­­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­­­sent hlut, Jón G. Þór­is­­­son, rit­­­stjóri Frétta­­­blaðs­ins, með fimm pró­­­sent hlut, og Guð­­­mundur Örn Jóhanns­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­varps­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­kvæmda­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­mála og dag­­­­skrár­­­­gerðar hjá Torg­i.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent