Vegna mikils samdráttar í rekstri og óvissu vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins hefur Fríhöfnin ehf, dótturfélag Isavia ohf, sagt upp 62 starfsmönnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia í dag.
„Frá því áhrifa faraldursins fór að gæta hér á landi hefur stöðugildum hjá fyrirtækinu fækkað um tæp 60 prósent og gripið hefur verið til ýmissa annarra hagræðingaraðgerða sem snerta öll svið Fríhafnarinnar,“ segir í tilkynningunni.
Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segir að því miður sé staðan þannig að fækkun starfsfólks sé óhjákvæmileg. „Útlit er fyrir að ferðamenn sem koma til landsins verði afar fáir næstu misserin og erfitt að spá fyrir um hvenær fer að horfa til betri vegar. Við hjá Fríhöfninni höfum gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða frá því að heimsfaraldurinn hófst en því miður er staðan og útlitið verra en spáð var á fyrstu stigum.“
Þorgerður segir að mikil óvissa sé framundan og að staðan verði endurskoðuð reglulega.
Isavia greindi frá því á föstudaginn fyrir helgi að fyrirtækið hefði sagt upp 133 starfsmönnum og sett tólf til viðbótar í lægra starfshlutfall. Aðgerðirnar koma til viðbótar því að 101 starfsmanni var sagt upp í lok mars. Isavia, sem rekur meðal annars Keflavíkurflugvöll, hefur því sagt upp 234 manns frá því að COVID-19 faraldurinn skall á Íslandi. Frá því faraldurinn hófst hefur stöðugildum hjá móðurfélagi Isavia nú fækkað um 40 prósent.