Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag.
Þar segir að frumvarpinu sé ætlað að aðstoða einyrkja og litla rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi og sé liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna faraldursins og „leggja grunn fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfar hans“.
Tekjufallsstyrkjum er meðal annars ætlað að styðja minni rekstraraðila sem starfa í menningar- og listgreinum, ferðaleiðsögumenn og aðra minni aðila í rekstri, að því er fram kemur í tilkynningunni.
„Styrkirnir munu jafngilda rekstrarkostnaði (þ.m.t. reiknuðu endurgjaldi) á tímabilinu frá 1. apríl 2020 til 30. september 2020 en geta þó ekki orðið hærri en 400 þúsund krónur fyrir hvert stöðugildi á mánuði hjá rekstraraðila á tímabilinu.
Tekjufallsstyrkir eru hluti af viðamiklum ráðstöfunum sem ríkisstjórnin hefur gripið til vegna efnahagslegra áhrifa kórónuveirufaraldursins. Meðal aðgerða sem þegar hafa komið til framkvæmda eru greiðsla atvinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli, lenging tímabils tekjutengdra atvinnuleysisbóta, greiðslur vegna launa einstaklinga á uppsagnarfresti, frestun á skattgreiðslum, veiting lokunarstyrkja auk brúar- og stuðningslána,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
Helstu skilyrði þess að rekstraraðili geti sótt um tekjufallsstyrk:
- Hann hafi orðið fyrir minnst 50 prósent tekjufalli á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september 2020.
- Að hámarki þrír launamenn starfi hjá rekstraraðila.
- Umsækjendur þurfa að auki að uppfylla skilyrði um skattskyldu á Íslandi, lágmarksveltu, skilvísi á opinberum gjöldum og gögnum til Skattsins og áframhaldandi rekstur.
Verði frumvarpið óbreytt að lögum mun Skatturinn sjá um afgreiðslu tekjufallsstyrkja.
80 prósent listamanna orðið fyrir tekjufalli
BHM greindi frá því í morgun að um 80 prósent svarenda í könnun sem félagið gerði nýlega meðal listamanna hefðu orðið fyrir tekjufalli vegna COVID-kreppunnar.
„Helmingur þeirra hefur horft upp á tekjur sínar minnka um meira en 50 prósent milli ára og tæplega fimmtungur um á bilinu 75 til 100 prósent, sem jafna má til algers tekjuhruns. Tekjur meirihluta svarenda eru nú undir framfærsluviðmiði og um helmingur þeirra segist eiga erfitt með að standa undir fjárhagslegum skuldbindingum sínum. Ýmislegt bendir þó til þess að núverandi bótaúrræði séu óaðgengileg og nýtist illa þessum hópi. Mörg ríki hafa valið að styðja fjárhagslega við bakið á listamönnum með sértækum aðgerðum en Ísland er ekki þar á meðal,“ sagði í tilkynningu frá BHM í morgun.