Norðurál hefur sent erindi til Samkeppniseftirlitsins og óskað íhlutunar þess, vegna þess sem Norðurál telur vera misnotkun Landsvirkjunar á markaðsráðandi stöðu á skammtímamarkaði með raforku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðuráli.
Í tilkynningu fyrirtækisins segir að Norðurál hafi í allnokkur ár ekki haft nægjanlega orku í gegnum langtímasamninga til að halda uppi fullri framleiðslu í álveri sínu á Grundartanga og hafi tímabundið þurft að kaupa orku á skammtímamarkaði til að fylla upp í skerðingar vegna viðhalds hjá öðrum orkuframleiðendum sem Norðurál kaupir orku af.
Einnig segir að í byrjun sumars hafi þessi staða komið upp og álverið þurft að kaupa raforku á skammtímamarkaði til að forðast tjón í kerskála og til að geta haldið uppi fullri framleiðslu.
„Nær öll raforka á íslenska skammtímamarkaðnum er framleidd af Landsvirkjun. Eftirspurn eftir raforku hafði dregist saman á Íslandi og staða í lónum Landsvirkjunar var yfir meðallagi. Við slíkar aðstæður ætti verð að vera lægra en ella. Það verð sem Landsvirkjun vildi fá var hins vegar yfir því verði sem Norðurál keypti frá minni orkuframleiðanda, að því marki sem sá hafði slíka orku til reiðu, var yfir meðalverði Landsvirkjunar árin á undan og yfir verði á Norræna skammtímamarkaðnum, Nord Pool,“ segir í tilkynningu Norðuráls.
Norðurál telur þannig að Landsvirkjun hafi „sem markaðsráðandi aðili á markaði með skammtímaorku misnotað stöðu sína gagnvart Norðuráli með því að krefjast ósanngjarns og óhóflegs endurgjalds fyrir umframorku.“
„Það er eðlilegur hluti af viðskiptum fyrirtækja á Íslandi að þurfa öðru hverju að leita til opinberra aðila eins og Samkeppniseftirlitsins til að greiða úr deilumálum og fá sinn hlut réttan. Ég legg hins vegar áherslu á að samstarfið við Landsvirkjun hefur almennt verið mjög gott hingað til og ég vænti þess að svo verði áfram,“ er haft eftir Gunnari Guðlaugssyni forstjóra Norðuráls í tilkynningunni.