201 framúrskarandi fyrirtæki á hlutabótaleið

Fyrirtæki sem Creditinfo hefur skilgreint sem framúrskarandi voru líklegri til að hafa farið á hlutabótaleiðina en önnur virk fyrirtæki hér á landi, en tæpur fjórðungur þeirra nýttu sér úrræðið í vor.

Fjöldi fyrirtækja fór á hlutabótaleið í kjölfar lokana vegna veirufaraldursins í vor.
Fjöldi fyrirtækja fór á hlutabótaleið í kjölfar lokana vegna veirufaraldursins í vor.
Auglýsing

Af þeim 842 fyr­ir­tækjum sem Credit­info skil­greinir sem fram­úr­skar­andi fékk 201 þeirra nið­ur­greidd laun fyrir starfs­menn þeirra í gegnum hluta­bóta­leið­ina í byrjun COVID-19 far­ald­urs­ins í vor. Þetta jafn­gildir 23 pró­sentum af öllum fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækj­um, en um 16 pró­sent allra virkra fyr­ir­tækja nýttu sér úrræð­ið. 

Þetta kemur fram ef listi Credit­info er bor­inn saman við lista Vinnu­mála­stofn­unar yfir þau fyr­ir­tæki sem voru í hluta­bóta­leið­inni í vor. 

Sam­kvæmt Credit­info þurfa fyr­ir­tæki meðal ann­ars að vera með gott láns­hæfi og hafa skilað rekstr­ar­hagn­aði síð­ustu þrjú ár til að vera skil­greind sem fram­úr­skar­andi, auk þess sem eig­in­fjár­hlut­fall þess þarf að hafa verið að minnsta kosti 20% síð­ustu þrjú árin. Rekstr­ar- og eigna­staða þeirra byggir á árs­reikn­ingum fyrir árið 2019. 

Auglýsing

Alls voru 842 fyr­ir­tæki skil­greind sem fram­úr­skar­andi í ár og hafði þeim fækkað um 45 frá árinu 2017. Sam­kvæmt Credit­info gæti fækk­unin á list­anum bent til þess að kólnun hafi átt sér stað í íslensku atvinnu­lífi í fyrra, en fyr­ir­tækið telur það þó vera gott merki að fækk­unin sé hlut­falls­lega lítil og merki um að íslenskt atvinnu­líf hafi staðið sterkum fótum við síð­ustu ára­mót. 

Af þessum 842 fyr­ir­tækjum voru 115 bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki, 64 ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, auk tæp­lega 60 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og 30 vátrygg­inga­fyr­ir­tækja. Alls voru þau tvö pró­sent allra virkra fyr­ir­tækja hér á landi, sem eru þá rúm­lega 41 þús­und tals­ins. 

Sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun nýttu um 6.700 fyr­ir­tæki sér hluta­bóta­leið­ina í vor, en það jafn­gildir 16 pró­sent af öllum virkum fyr­ir­tækjum hér á landi. Af þessum fyr­ir­tækjum skil­greinir Credit­info 201 þeirra sem fram­úr­skar­andi. Því voru 23 pró­sent fram­úr­skar­andi fyr­ir­tækja á hluta­bóta­leið í vor.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent