Nýr forstjóri yfir Mjólkursamsölunni – Ari Edwald stýrir áfram útrásinni

Ákveðið hefur verið að skipta Mjólkursamsölunni upp í þrjú félög. Ari Edwald mun stýra tveimur þeirra.

iseyin.jpg
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að skipta Mjólk­ur­sam­söl­unni, einnig þekkt sem MS, upp í þrjú félög. Inn­lend starf­semi verður áfram í Mjólk­ur­sam­söl­unni en Ísey útflutn­ingur og eign­ar­hlutur í móð­ur­fé­lagi Ísey Skyr Bars fær­ast í félagið MS erlend starf­semi ehf. og eign­ar­hlutur í banda­ríska skyr­fyr­ir­tæk­inu Icelandic Provisions í félagið MS eign­ar­hald ehf.

Ari Edwald, sem verið hefur for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar frá árinu 2015, hefur und­an­farið verið fram­kvæmda­stjóri Ísey útflutn­ings sam­hliða því starfi Hann færir sig nú alfarið yfir í erlendu starf­sem­ina og mun stýra MS erlendri starf­semi og MS eign­ar­hald­i. 

Pálmi Vil­hjálms­son, núver­andi aðstoð­ar­for­stjóri, verður for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar.

Eig­endur Mjólk­ur­sam­söl­unnar eru Auð­humla, sam­vinnu­fé­lag kúa­bænda, sem á 80 pró­sent hlut og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sem á 20 pró­sent hlut. 

Auglýsing
Mjólkursamsalan hagn­að­ist um 167,7 millj­ónir króna í fyrra. Eignir félags­ins námu 15,5 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót og eig­in­fjár­hlut­fall var 48,8 pró­sent. Fjöldi árs­verka var 435 tals­ins. Ári áður, 2018, hafði fyr­ir­tækið tapað 272,5 millj­ónum króna. Velta þess dróst saman um 207 millj­ónir króna milli ára.

Gert að greiða háa sekt

Lands­­réttur komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í mar­s­mán­uði að Mjólk­ur­sam­salan ætti að greiða alls 480 millj­­ónir króna í stjórn­­­valds­­sekt vegna brota á sam­keppn­is­lög­um, fyrir að hafa mis­­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og mis­­munað við­­skipta­að­ilum sínum þegar kom að því að selja hrá­­mjólk til fram­­leiðslu á mjólk­­ur­vör­­um.

Þannig seldi Mjólk­ur­sam­salan keppi­­nautum sínum grund­vall­­ar­hrá­efni til fram­­leiðslu á mjólk­­ur­vörum, það er að segja hrá­­mjólk, á hærra verði en Mjólk­ur­sam­salan sjálft og tengdir aðil­­ar, sem eru Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga og dótt­­ur­­fé­lag þess, þurftu að greiða. 

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku stefndu í sumar Mjólk­­ur­­sam­­söl­unni vegna þess sem þeir segja að séu langvar­andi, ítrek­aðra og alvar­­leg brota á sam­keppn­is­lögum af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins. Með stefn­unni fóru fyrr­ver­andi eig­endur Mjólku fram á Mjólk­ur­sam­salan við­­ur­­kenni skaða­­bóta­­skyldu sína gagn­vart þeim.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent