Lárus Sigurður biðst lausnar sem formaður Menntasjóðs námsmanna

Lögmanni hefur verið vikið úr starfi skiptastjóra þrotabús fasteignafélagsins Þórodds ehf. vegna brots á starfs- og trúnaðarskyldum sínum. Hann hefur nú beðist lausnar sem formaður Menntasjóðs námsmanna.

Lárus Sigurður Lárusson lögmaður.
Lárus Sigurður Lárusson lögmaður.
Auglýsing

Lárus Sig­urður Lár­us­son lög­maður hefur beðist lausnar sem for­maður Mennta­sjóðs náms­manna, vegna dóms sem féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í lið­inni viku og varð­aði störf hans fyrir þrotabú fast­eigna­fé­lags­ins Þór­odds­staða ehf. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Lárus Sig­urður sendi frá sér í dag.

Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að Lárusi Sig­urði hefði verið vikið úr starfi skipta­stjóra þrota­bús fast­eigna­fé­lags­ins Þór­odds ehf. vegna brots á starfs- og trún­að­ar­skyldum sínum sem skipta­stjóri. Úrskurður þessa efnis var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á föstu­dag­inn.

Ástæða brott­vikn­ing­ar­innar er fram­ferði hans í tengslum við sölu á verð­mæt­ustu eign búss­ins, fast­eign­inni Þór­odds­stöðum sem stendur við Skóg­ar­hlíð 22 í Reykja­vík, að því er fram kemur í frétt Frétta­blaðs­ins.

Auglýsing

Ósam­mála nið­ur­stöð­unni

Í til­kynn­ingu Lárusar Sig­urðar kemur fram að hann sé ósam­mála nið­ur­stöðu dóms­ins og kanni nú for­sendur áfrýj­un­ar. „Hann telur mjög brýnt að deilu­mál vegna þrota­bús­ins hafi ekki áhrif á önnur störf sín, þ.m.t. vinnu hans fyrir Mennta­sjóð náms­manna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hann hefur til­kynnt Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra þessa ákvörð­un. „Mennta­sjóður náms­manna er afar mik­il­væg stofnun sem gegnir grund­vall­ar­hlut­verki í sam­fé­lag­inu. Því er brýnt að friður ríki um stjórn og starf­semi Mennta­sjóðs­ins og það góða starf sem þar er unnið fái að halda áfram án óþarfa gagn­rýni. Ég hef af þessum sökum beðist lausnar sem for­maður Mennta­sjóðs, og einnig undan öðrum trún­að­ar­störfum mín­um,“ segir Lárus í til­kynn­ing­unni.

Lárus Sig­urður var skip­aður stjórn­ar­for­maður nýs Mennta­sjóðs náms­manna, sem kemur í stað Lána­sjóðs íslenskra náms­manna (LÍN), í júlí síð­ast­liðnum en mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skipar í stjórn sjóðs­ins.

Situr í stjórn um heið­urs­laun lista­manna

Kjarn­inn fjall­aði um skip­un­ina á sínum tíma og greindi frá því að Lárus Sig­urður hefði starfað hjá lög­manns­stof­unni Sævar Þór & Partners. Hann hefði áður starfað sem lög­fræð­ingur hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í rúm fimm ár áður en hann fór að leggja stund á lög­mennsku. Þar áður hefði hann verði lög­fræð­ingur hjá Per­sónu­vernd. Alls hefði Lárus Sig­urður starfað sem lög­fræð­ingur hjá rík­inu í meira en ára­tug.

Hann hafði enn fremur setið í stjórn LÍN frá 2018 og verið vara­for­maður stjórn­ar­inn­ar. Lárus Sig­urður situr einnig í stjórn um heið­urs­laun lista­manna og er vara­maður í stjórn lista­manna­launa. Í þessar stjórnir var hann einnig til­nefndur eða skip­aður í af Lilju Alfreðs­dótt­ur.

Odd­viti Fram­sóknar í Reykja­vík norður árið 2017

Lárus Sig­urður hefur lengi verið virkur í starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Ég hef verið í Fram­sókn­ar­flokknum í meira en 20 ár. Það liggur við að það hafi stundum verið feimn­is­mál að vera í Fram­sókn­ar­flokknum og oft verið mjög erfitt,“ sagði hann í við­tali við Vísi árið 2016.

Þá var Lárus í 2. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir alþing­is­kosn­ing­ar. Ári seinna, er boðað var að nýju til kosn­inga, var Lárus Sig­urður odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu og voru það því hann og Lilja Alfreðs­dóttir sem fóru fyrir flokknum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveim­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent