ÁTVR bregst við aðfinnslum yfirvalda og hleypir inn 25 að hámarki

ÁTVR hefur ákveðið að hámarka fjölda viðskiptavina í stærstu verslunum sínum frekar, til að koma til móts við sóttvarnayfirvöld. Áfengi er skilgreint sem matvara í lögum og fellur því undir undanþáguákvæði í reglugerð ráðherra um samkomutakmarkanir.

Vínbúð ÁTVR í Borgartúni.
Vínbúð ÁTVR í Borgartúni.
Auglýsing

Tutt­ugu og fimm við­skipta­vinir mega að hámarki koma inn í Vín­búðir lands­ins, sam­kvæmt breyt­ingum sem ÁTVR hefur ákveðið að gera til þess að koma til móts við óskir sótt­varna­yf­ir­valda. 

Áður var verið að hleypa 35 inn í stærstu Vín­búð­irn­ar, eftir að ný reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum tók gildi á laug­ar­dag, en færri inn í þær minni og jafn­vel færri en 10 við­skipta­vinum í minnstu búð­unum í lands­byggð­un­um.

Þetta kemur fram á vef ÁTVR, en Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn þangað í gær eftir að Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna að yfir­völd hefðu hrein­lega ekki haft hug­mynda­flug til þess að átta sig á því að áfengi væri lögum sam­kvæmt skil­greint sem mat­væli og að Vín­búð­irnar myndu því falla undir sömu und­an­þágur og mat­vöru­versl­anir og lyfja­versl­an­ir.

Auglýsing

Andrés Magn­ús­son fram­kvæmda­stjóri Sam­taka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) furð­aði sig á því í kvöld­fréttum RÚV á laug­ar­dag að fleirum en 10 væri hleypt inn í Vín­búð­irn­ar, á meðan að rekstr­ar­að­ilar um allt land væru að aðlaga sig hertum ráð­stöf­unum stjórn­valda og margir hverjir með hús­næði sem bæri mun meiri fjölda en Vín­búð­irn­ar.

ÁTVR sagð­ist í gær vera með málið til skoð­un­ar, en segir í dag að ákvörðun hafi verið tekin um að 25 við­skipta­vinir megi koma inn í stærstu Vín­búð­irn­ar. 

„Alls staðar er tveggja metra reglan í hávegum höfð og það er hún sem ræður fjölda við­skipta­vina á hverjum stað,“ segir ÁTVR.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent