Nokkur kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtæki hafa ákveðið að stöðva starfsemi sína í ljósi núgildandi sóttvarnareglna, sem innihalda tíu manna fjöldatakmörk og tveggja metra fjarlægðarreglu. Önnur hafa hins vegar náð að halda áfram starfsemi sinni með auknum sóttvarnaráðstöfunum, meðal annars með skiptingu myndvera í sóttvarnahólf. Framleiðsludeild RÚV hefur svo fengið undanþágu frá tíu manna reglunni, en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu var hún veitt svo að Ríkisútvarpið gæti sinnt sínu lögbundna hlutverki.
Hlé hjá Sagafilm
Anna Vigdís Gísladóttir, framleiðandi hjá Sagafilm, segir fyrirtækið hafa gert hlé á þeim kvikmyndatökum sem ekki rúmast innan tíu manna reglunnar. „Sagafilm hefur átt í mjög góðu samstarfi við sóttvarnalækni og ráðuneytið um reglur sem unnið hefur verið eftir við kvikmyndatökur frá því í vor. Við könnuðum með undanþágur þegar þessar nýju reglur tóku gildi en fengum skýr svör að þær yrðu ekki veittar. Við virðum það að sjálfsögðu,“ sagði Anna Vigdís.
Tökur á Ófærð í gangi
Framleiðslufyrirtækið RVK Studios hefur hins vegar náð að halda áfram tökum á sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð, þrátt fyrir þessar takmarkanir. Baltasar Kormákur, leikstjóri þáttanna, segir gott samstarf hafa verið með sóttvarnayfirvöldum á síðustu mánuðum og vísar meðal annars til góðra umsagna lögreglunnar á Austurlandi á vinnuháttum fyrirtækisins í síðasta mánuði.
Baltasar bætir við að fyrirtækið vinni með streymisrisanum Netflix, sem geri miklar kröfur til þess að sóttvarnir séu í lagi, auk þess sem starfsfólk hans sé hitamælt daglega. Einnig segir hann að hægt hafi verið að halda áfram með upptökur í myndveri með því að skipta því í mörg sóttvarnahólf.
RÚV með undanþágu
Fréttastofa og framleiðsludeild RÚV hefur hins vegar fengið undanþágu frá núgildandi sóttvarnalögum. Þar mega nú vera allt að 20 manns í hverju rými. Í tölvupósti sem starfsmönnum RÚV barst vegna undanþágunnar kemur fram að framleiðsludeildin sé hluti af því almannaviðbragði sem er í gangi í ljósi samkomutakmarkanna, þar sem „andlega hlið landans“ sé mikilvægt hagsmunamál.
Í svari við fyrirspurn Kjarnans segir heilbrigðisráðuneytið hins vegar að ákveðið hafi verið að veita undanþáguna í ljósi þess lögbundna öryggishlutverks sem RÚV gegnir í miðlun upplýsinga. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir í samtali við Kjarnann að undanþágunni sé aðallega beitt í fréttastofu RÚV, en örfá tilvik geti einnig komið fram þar sem óhjákvæmilegt er að fjölga starfsmönnum í sama rými. Þá bætir hann við að hann telji að framleiðsludeildin hafi ekki enn þurft að nýta þessa heimild.