„Þessi ofbeldishrina er ekkert annað en skuggafaraldur“

Formaður Viðreisnar vill sérstakan aðgerðapakka til að koma í veg fyrir langtímaafleiðingar líkamlegs eða kynferðislegs ofbeldis. Hún segir stöðuna grafalvarlega – sem verði ekki hunsuð.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, segir að þing­menn verði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að verja frelsi kvenna til að þurfa ekki að búa við ofbeldi. Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Mér finnst við­eig­andi og raunar nauð­syn­legt að minn­ast á þá stað­reynd að í dag, 25. nóv­em­ber, er alþjóð­legur bar­áttu­dagur gegn kyn­bundnu ofbeldi. Dag­ur­inn í dag er mik­il­væg áminn­ing þess að enn eigum við langt í land þegar kemur að því að upp­ræta það grafal­var­lega mein sem ofbeldi er í sam­fé­lagi okk­ar, hvað þá á heims­vísu.

Sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni verður þriðja hver kona fyrir lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi á ævi sinni um heim allan, oft­ast í nánum sam­bönd­um. Stað­reyndin er sú að í miðjum heims­far­aldri hafa fleiri til­kynn­ingar borist hér á landi um heim­il­is­of­beldi á þessu ári en á sama tíma síð­ustu þrjú árin. Síð­ustu þrjú ár, herra for­set­i,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Auglýsing

Grafal­var­leg staða sem ekki verður hunsuð

Þá sagði þing­mað­ur­inn að UN Women hefðu bent á þá stað­reynd að margar konur og stúlkur um heim allan væru bundnar heima með ofbeld­is­mönnum sínum vegna sam­komu­tak­mark­ana og útgöngu­banna. Jafn­framt hefði fjár­magni verið stýrt frá úrræðum og stoð­þjón­ustu fyrir þolendur ofbeld­is.

„Þetta er grafal­var­leg staða, virðu­legi for­seti, sem ekki verður huns­uð. Það er því miður svo að kyn­bundið ofbeldi er hrein og klár skugga­hlið af Covid-19. Þessi ofbeld­is­hrina er ekk­ert annað en skugga­far­ald­ur.

Lang­tíma­af­leið­ingar af slíku ástandi eru aug­ljósar og hljóta að eiga skilið mikla athygli af okkar hálfu hér á Alþingi. Það hlýtur að liggja bein­ast við að koma á sér­stökum aðgerða­pakka til að koma í veg fyrir lang­tíma­af­leið­ing­ar,“ sagði hún.

Enn fremur nefndi hún að á þing­inu væri mönnum iðu­lega tíð­rætt um frelsi. „Það hlýtur því að liggja beint við að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að verja frelsi kvenna til að þurfa ekki að búa við ofbeld­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent