Erlend hlutabréf skiluðu miklu í kassann hjá Gildi en umtalsvert tap varð vegna Icelandair

Þorri tekna Gildis það sem af er ári kemur vegna erlendra fjárfestinga. Þar skipta gjaldmiðlaáhrif lykilmáli. Innlend hlutabréf skiluðu sjóðnum samanlagt 1,3 milljörðum króna í tekjur á fyrstu tíu mánuðum ársins.

Kauphöll 25.09.2017 eftir birgi ísleif
Auglýsing

Hagn­aður Gildis af hluta­bréfum í Marel var 3,4 millj­­arður króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Hagar skil­uðu sjóðnum 1,9 millj­arði króna í hagnað og Sím­inn 1,8 millj­örðum króna.  Ávöxtun á bréfum sjóðs­ins í Sím­anum var hlut­falls­lega sú mesta, eða 45,8 pró­sent. 

Ekk­ert annað íslenskt hluta­fé­lag hefur skilað Gildi yfir millj­­arði í hagnað á árinu, þótt Festi, með 800 millj­ónir króna, kom­ist nálægt því. 

Annað árið í röð er mest tap vegna inn­lendrar hluta­bréfa­eignar Gildis vegna Icelanda­ir. Frá byrjun árs og til loka októ­ber tap­aði sjóð­ur­inn 2,8 millj­örðum króna á þessu stærsta ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins. Ávöxtun Gildis í Icelandair var nei­kvæð um 81,5 pró­sent á árin­u. 

Auglýsing

Þetta kom fram i kynn­ingu Dav­íðs Rúd­ólfs­sonar, for­stöðu­manns eigna­stýr­ingar Gild­is, á fundi sjóðs­fé­laga og full­­trú­a­ráðs líf­eyr­is­­sjóðs­ins sem fram fór á mið­viku­dag. Auk Dav­íðs hélt Árni Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Gild­is, kynn­ingu á stöðu sjóðs­ins á fund­in­um. 

Gildi var á meðal stærstu eig­enda Icelandair fyrir hluta­fjár­út­boð félags­ins fyrr á þessu ári með 7,24 pró­sent eign­ar­hlut. Í ágúst greindi Kjarn­inn frá því að nei­kvæð ávöxtun Gildis af fjár­fest­ing­unni í Icelandair á tæp­lega ára­tug væri 72,4 pró­sent. Til sam­an­burðar var raun­á­vöxtun af inn­lendu skráðu hluta­bréfa­safni sjóðs­ins í heild sinni um 110,8 pró­sent yfir sama tíma­bil. Gildi tók samt sem áður þátt í hluta­fjár­út­boð­inu og er í dag stærsti eig­andi félags­ins með 6,34 pró­sent eign­ar­hlut. Vert er að taka fram að hluta­bréf í Icelandair hafa hækkað nokkuð und­an­farna daga. 

Hrein eign jókst um 62 millj­arða

Í kynn­ingu Árna kom fram að hrein eign sam­­trygg­inga­­deildar Gildis hefði hækkað um 62 millj­­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins og hefði staðið í 727 millj­­örðum króna um síð­­­ustu mán­aða­mót. Hrein raun­á­vöxtun var 7,5 pró­sent á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins. Sú við­­bót sem til hefur fallið sam­anstendur að mestu af 62,8 millj­­arða króna fjár­­­fest­inga­­tekj­um og 25,9 millj­­arða króna iðgjöldum sem greidd hafa verið inn í sjóð­inn á tíma­bil­inu. Á móti hefur Gildi grei­tt út 15,9 millj­­arða króna í líf­eyri á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins auk þess sem rekstr­­ar­­kostn­aður nam 927 millj­­ónum króna. 

Stærstu eigna­­flokkar Gildis eru hluta­bréf. Þannig voru 28,8 pró­­sent af eignum sam­­trygg­ing­­ar­­deildar sjóðs­ins í erlendum hluta­bréfum um síð­­­ustu mán­aða­­mót en 18,1 pró­­sent í inn­­­lend­­um. 

Þorri tekna Gildis það sem af er ári kemur vegna erlendra fjár­fest­inga. Erlend hluta­bréf haga skilað 31,8 millj­arði króna og erlendir skulda­bréfa­sjóðir 8,5 millj­örðum króna. Á sama tíma skil­uðu inn­lend hluta­bréf 1,3 millj­arði króna í tekjur og rík­is­tryggð skulda­bréf 9,1 millj­arði króna. Stór hluti af erlenda hagn­að­inum er til­kom­inn vegna gjald­miðla­á­hrifa sem rekja má til veik­ingar krón­unnar það sem af er ári. Af tekjum vegna erlendra hluta­bréfa voru til að mynda 93 pró­sent til­komin vegna gjald­miðla­á­hrifa. 

Sam­dráttur í hús­næð­is­lánum

Gildi er einn þeirra líf­eyr­is­sjóða sem hefur verið nokkuð umsvifa­mik­ill í hús­næð­is­lána­út­lánum til sjóðs­fé­laga á und­an­förnum árum. Á árinu 2015, þegar end­ur­koma líf­eyr­is­sjóð­anna inn á þann markað hófst af alvöru, lán­aði Gildi alls 2,2 millj­arða króna í ný sjóðs­fé­lags­lán. Árið 2018, þegar umsvif sjóðs­ins voru sem mest, lán­aði hann 22 millj­arða króna í slík lán. Þau tíföld­uð­ust því á þremur árum. 

Umfangið dróst lít­il­lega saman í fyrra og var 20,6 millj­arðar króna. Að hluta til var það vegna þess að Gildi þrengdi lána­skil­yrði sín og greip til aðgerða til að draga úr eft­ir­spurn eftir lán­um. Í ár hefur sú eft­ir­spurn síðan dreg­ist veru­lega sam­an. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2020 lán­aði Gildi 13,3 millj­arða króna og nokkuð ljóst að ársnið­ur­staðan verður tölu­verður sam­dráttur frá því í fyrra. 

Ástæð­una er að uppi­stöðu að finna í lægri stýri­vöxtum sem hafa leitt til þess að við­skipta­bankar lands­ins bjóða nú upp á mun betri kjör á hús­næð­is­lánum en flestir líf­eyr­is­sjóð­ir, öfugt við það sem verið hefur und­an­farin ár. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent