Halli ríkissjóðs 2021 nú áætlaður 320 milljarðar króna

Breytingatillögur meirihluta fjárlaganefndar hafa verið lagðar fram á Alþingi. Efnahagsstaðan hefur versnað frá því að fjárlög voru kynnt 1. október, sem þýðir meiri fjárútlát ríkissjóðs en áætlað var.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra með fjárlagafrumvarp ársins 2021 í höndunum. Meirihluti fjárlaganefndar bætir 55,3 milljörðum króna við útgjöld ríkissjóðs, með breytingatillögum sem lagðar hafa verið fram.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra með fjárlagafrumvarp ársins 2021 í höndunum. Meirihluti fjárlaganefndar bætir 55,3 milljörðum króna við útgjöld ríkissjóðs, með breytingatillögum sem lagðar hafa verið fram.
Auglýsing

Sam­kvæmt þeim breyt­ing­ar­til­lögum sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur lagt fram á Alþingi verður afkoma rík­is­sjóðs árið 2021 nei­kvæð um tæp­lega 320 millj­arða króna, eða 10,4 af vergri lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans, sem birt voru á vef Alþingis í kvöld.

Þegar fjár­lög voru kynnt á fyrsta degi októ­ber­mán­aðar var gert ráð fyrir 264 millj­arða króna halla á næsta ári. Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að frá þeim tíma sem for­sendur frum­varpsin voru ljósar hafi efna­hags­fram­vindan reynst heldur lak­ari en gert var ráð fyr­ir. Því hefur enn verið bætt í efna­hags­að­gerðir af hálfu stjórn­valda og frek­ari mót­væg­is­að­gerðir kynnt­ar, sem kalla á aukin fjár­út­lát.



Sam­tals er því gerð til­laga um 55,3 millj­arða króna hækkun á útgjöldum rík­is­sjóðs frá því sem áætlað var í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var 1. októ­ber. „Þyngst vega 19,8 millj­arðar kr. vegna við­spyrnu­styrkja og 6 millj­arðar kr. vegna fram­leng­ingar á hluta­bóta­leið,“ segir í umfjöllun nefnd­ar­inn­ar.



Með þessum útgjöldum inni­földum er áætlað að útgjöld rík­is­sjóðs verði 180 millj­örðum króna hærri árið 2021 en þau voru á fjár­lögum árs­ins 2020. Hall­inn er sem áður seg­ir, áætl­aður 320 millj­arðar króna.



Sveit­ar­fé­lög fá lítið fyrir sinn snúð



Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans er vikið að kröfum full­trúa sveit­ar­fé­laga sem komið hafa fram í umræð­unni að und­an­förnu, um auk­inn fjár­stuðn­ing úr rík­is­sjóði til þess að mæta áhrifum far­ald­urs­ins. Meiri­hluti nefnd­ar­innar segir að það þurfi að hafa í huga að „upp­bygg­ing og fjár­mögnun sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins er afar frá­brugðin því sem tíðkast ann­ars staðar á Norð­ur­löndum og víða um Evr­ópu.“



Því gefi það vill­andi mynd að bera saman stuðn­ings rík­is­sjóðs hér á landi við stuðn­ing ann­arra landa sem búa við gjör­ó­lík kerf­i. 



Auglýsing



„Sveit­ar­fé­lögin eru fjár­hags­lega sjálf­stæð og sam­an­borið við önnur lönd er stærri hluti tekna þeirra hér á landi í formi lög­bund­inna tekju­stofna en í formi beinna fram­laga úr rík­is­sjóði. Slíkt fyr­ir­komu­lag, þar sem sveit­ar­fé­lögin eru meira og minna háð lög­bundnum fram­lög­um, þurfa að stunda sjálf­stæða fjár­mála­stjórn og búa í hag­inn þegar efna­hags­lífið er í upp­gangi til að geta staðið af sér nið­ur­sveiflu í hag­kerf­in­u,“ ­segir meiri­hluti fjár­laga­nefnd­ar, sem nefnir að sveit­ar­fé­lögum sem reiði sig að miklu leyti á ferða­þjón­ustu hafi þegar verið veittur stuðn­ing­ur.



„Ríkið mun sitja eftir með skulda­bagga sem þyng­ist um 20% af VLF á milli áranna 2019 og 2021, en á hinn bóg­inn er gert ráð fyrir að skuldir sveit­ar­fé­laga hækki um tæp­lega 3% af VLF á sama tíma,“ segir meiri­hluti fjár­laga­nefndar einnig, um stöðu sveit­ar­fé­laga.



Um 140 millj­ónum meira til RÚV en áætlað var



Sam­kvæmt meiri­hluta­á­lit­inu er gerð ein breyt­ing­ar­til­laga varð­andi fjár­út­lát rík­is­sjóðs til fjöl­miðla, en hún er sú að gert er ráð fyrir 140 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lagi til Rík­is­út­varps­ins, sökum þess að tekju­á­ætlun af útvarps­gjaldi hefur verið upp­færð frá því sem miðað var við í frum­varp­inu.



Reikna má með því að breyt­ing­ar­til­lögur við fjár­lögin komi til umræðu á Alþingi strax á morg­un, fimmtu­dag.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent