„Hvers lags þvættingur er þetta, háttvirtur þingmaður?“

Ekki tóku þingmenn vel í orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, í umræðum um aðkvæðagreiðslu um kynrænt sjálfræði í dag.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

„Það er bein­línis hörmu­legt að hlusta hér á mál­flutn­ing hátt­virts þing­manns og for­manns Mið­flokks­ins, Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar.“

Þannig hófst ræða Páls Magn­ús­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í umræðum um atkvæða­greiðslu um kyn­rænt sjálf­ræði á Alþingi í dag.

„Það stendur upp úr hon­um, hátt­virtum þing­manni, hér bunan um það að þetta snú­ist ekki um mann­rétt­indi. Þetta snú­ist ekki um frelsi. Þetta séu merki­miða­stjórn­mál. Spurðu fólkið sem í hlut á, hátt­virtur þing­mað­ur, hvort þetta séu mann­rétt­indi, frels­is­mál eða merki­miða­stjórn­mál,“ sagði Páll.

Auglýsing

„Versta mál“ þess­arar rík­is­stjórnar

Sig­mundur Davíð hafði komið í pontu nokkru áður og sagt að þetta væri versta mál þess­arar rík­is­stjórn­ar. „Dæmi­gert merki­miða­stjórn­mál sem er ein­göngu rætt út frá heiti og yfir­lýstum mark­miðum en ekki inni­haldi og afleið­ing­um. Þess vegna höfum við heyrt hér hástemmd öfug­mæli um mann­rétt­indi og annað sem er í raun þver­sagnir þegar þetta mál er skoð­að. Þetta snýst ekki um að vernda inter­sex fólk og þetta snýst ekki um trans fólk. Þetta snýst um að svipta börnin sjálf­sögðum og lífs­bæt­andi lækn­ingum sem fram­kvæmdar hafa verið með góðum árangri, jafn­vel ára­tugum sam­an.

Rök­stuðn­ing­ur­inn er oft á tíðum far­sa­kennd­ur, vísað jafn­vel í alþjóða­sátt­mála gegn pynt­ingum til að rétt­læta það að börn fái ekki heil­brigð­is­þjón­ustu. Það er með þessu verði að gefa til kynna að mörg hund­ruð for­eldrar og læknar hafa á und­an­förnum árum og ára­tugum brotið rétt á börnum sínum með því að veita þeim aðgerðir eða aðrar lækn­ingar sem hafa veru­lega bætt lífs­gæði þeirra fyrir lífs­tíð. Og það er ótrú­legt að svona forn­eskju­legt og öfga­fullt mál skuli keyrt hér í gegn á alþingi árið 2020,“ sagði Sig­mundur Dav­íð.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Mynd: Bára Huld Beck

Sam­þykkir ekki að verið sé að meina börnum lækn­is­hjálp

Páll var eins og áður segir ekki sam­mála Sig­mundi Davið. „Þvætt­ing­ur­inn um það að það sé verið að meina börnum um lækn­is­hjálp, er það það sem Lækna­fé­lagið mælir ein­róma með að verði gert? Lækna­fé­lag Íslands sem mælir með sam­þykkt þessa frum­varps. Sér­fræð­inga­hóp­ur­inn, barna­skurð­lækn­arn­ir, barna­lækn­arnir á Land­spít­al­an­um. Eru þeir að mæla með því að börnum verði meinað um lækn­is­að­stoð? Hvers lags þvætt­ingur er þetta, hátt­virtur þing­mað­ur?“

Upp­skar þing­mað­ur­inn góðar und­ir­tektir í þing­sal við þessi orð sín.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent