Rósa Björk gengin til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar

Fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna hefur nú gengið til liðs við Samfylkinguna.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Auglýsing

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður utan flokka og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna, hefur gengið til liðs við þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Frá þessu greinir þing­mað­ur­inn í til­kynn­ingu til fjöl­miðla í dag. 

Rósa Björk til­kynnti Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um úrsögn sína úr þing­flokki Vinstri grænna þann 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Ástæðan var brott­vísun á barna­fjöl­skyldu frá Egypta­landi. Hún var annar þing­­maður Vinstri grænna sem sagði sig úr þing­­flokknum á þessu kjör­­tíma­bili. Í lok nóv­­em­ber í fyrra sagð­i Andrés Ingi Jóns­­­son ­sig úr honum og greindi frá því að hann myndi starfa sem óháður þing­­maður út kjör­­tíma­bil­ið. 

Auglýsing

Lofts­lags- og umhverf­is­mál gerðu úts­lagið

„Póli­tískar áherslur mínar og Sam­fylk­ing­ar­innar eru nátengdar með mik­il­vægi á auk­inn jöfnuð í sam­fé­lag­inu þar sem allir geta notið sín á eigin for­send­um, burt­séð frá stétt eða stöðu en líka á frið og sjálf­bærni og opið, fram­sækið og fjöl­breytt sam­fé­lag með áherslu á virka fjöl­þætta utan­rík­is­stefnu.

Að und­an­förnu hefur Sam­fylk­ingin að auki lagt mun meiri og skýr­ari þunga á loft­lags­mál­in, og umhverf­is­málin en áður og lagt fram góða áætlun um græna við­spyrnu út úr COVID-19 krepp­unni. Það gerir úts­lagið fyrir mig þegar kemur að því að taka þessa ákvörðun um að ganga í Sam­fylk­ing­una og þing­flokk henn­ar. Ég hlakka mjög mikið til að taka þátt í starfi Sam­fylk­ing­ar­innar og að leggja mitt á vog­ar­skál­arnar til að bæta íslenskt sam­fé­lag,“ ­segir hún í yfir­lýs­ing­unn­i. 

„Mik­ill hval­reki“ fyrir flokk­inn

For­maður flokks­ins, Logi Ein­ars­son, segir á Face­book það vera mik­inn hval­reka fyrir Sam­fylk­ing­una þegar Rósa Björk gekk til liðs við þing­flokk­inn í dag. 

„Ég hef kynnst henni ágæt­lega frá því við sett­umst á þing fyrir fjórum árum og álitið mitt á henni hefur vaxið stöðugt á þeim tíma.

Hún er án efa einn sterkasti þing­mað­ur­inn sem á sæti á Alþingi í dag og í loft­lags- og utan­rík­is­málum stand­ast henni fáir ef ein­hver snún­ing. Vertu vel­kom­inn til okkar kæra vin­kona,“ skrifar Log­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent