Alls sóttu 45 um að stýra samskiptateymi á vegum Reykjavíkurborgar. Á meðal umsækjenda eru Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi aðalritstjóri 365 miðla og Fréttablaðsins, Hrund Þórsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri DV, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV og Sigríður Björk Tómasdóttir, almannatengill Kópavogsbæjar.
Frá þessu er greint á vef RÚV.
Kjarninn greindi frá því í desember að fyrir séu upplýsingafulltrúar í níu stöðugildum hjá Reykjavíkurborg en þar af er einn í 80 prósent starfshlutfalli.
Í svari borgarinnar við fyrirspurn Kjarnans um málið sagði að sex hafi verið í upplýsingadeild/samskiptateymi sem starfi þvert á fagsviðin og tveir hjá umhverfis- og skipulagssviði, þar af annar í 80 prósent starfi. Þá hafi einn nýlega ráðinn í 100 prósent starf hjá velferðarsviði.
Árlegur launakostnaður við þessi níu stöðugildi er um 102 milljónir, að því er fram kom í svarinu.
Fagleg forysta varðandi framsækni og framþróun
Auglýst var eftir einstaklingi í stöðu þess sem á að stýra samskipteymi sem yrði staðsett á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í síðasta mánuði.
Helstu verkefni og ábyrgð sem felst í starfinu er innleiðing og eftirfylgni samskipta- og upplýsingastefnu borgarinnar, stjórnun og dagleg ábyrgð á starfsemi og rekstri samskiptateymis, fagleg uppbygging og þróun samskiptateymis. Jafnframt á þessi aðili að leiða samráðsvettvang upplýsingafulltrúa innan Reykjavíkurborgar og leiða Reykjavíkurborg inn í „áskoranir í síbreytilegu og fjölbreyttu fjölmiðlaumhverfi“. Enn fremur mun þessi einstaklingur sinna ráðgjöf á sviði samskipta- og upplýsingamála borgarinnar og hafa yfirumsjón með skipulagi og ráðgjöf hvað varðar samskipti við fjölmiðla og almenning.
Þeir sem sóttu um starfið eru í stafrófsröð:
- C. Wagner, ferðaráðgjafi.
- Anna Katrín Valdimarsdóttir,senior verkefnastjóri.
- Anna Þóra Ísfold Rebekkudóttir,viðskiptafræðingur.
- Árdís Rut Hlífar Einarsdóttir, lögfræðingur.
- Ásgrímur Sigurðsson,starfræn samskipti / nýmiðlasérfræðingur.
- Ásta Gísladóttir, þýðandi.
- Berglind Hallgrímsdóttir, sérfræðingur.
- Bergþóra Guðbergsdóttir, deildarstjóri.
- Borgþór Ásgeirsson, verkefnastjóri.
- Carlos Prieto Casquero, sagn- og bókmenntafræðingur.
- Daníel Friðriksson, hótelstjóri.
- Davíð Eldur Baldursson, ritstjóri.
- Davíð Freyr Þórunnarson, menningarstjórnandi
- Eygló Hallgrímsdóttir, mannauðsstjóri.
- Fanný S Cloé Goupil Thiercelin, umsjónarmaður.
- Fjalar Sigurðarson, markaðsstjóri.
- Guðbjörg Ómarsdóttir, forstöðumaður.
- Guðmundur Bjarni Benediktsson, ferðaráðgjafi.
- Gunnar Kristinn Sigurðsson, viðskiptafræðingur.
- Gunnar Þorri Þorleifsson, grunnskólakennari.
- Haraldur Líndal Haraldsson, samskiptaráðgjafi.
- Heiðdís Einarsdóttir, menningarmiðlari.
- Helena Ólafsdóttir, íþróttakennari og þáttastjórnandi.
- Hildur Kristinsdóttir, verkefnastjóri .
- Hrund Þórsdóttir, fréttastjóri.
- Hulda B. Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur.
- Jón Gunnar Borgþórsson, alþjóðlega vottaður stjórnendaráðgjafi.
- Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi.
- Kristinn Árnason, markaðsráðgjafi.
- Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi útgefandi og aðalritstjóri 365 miðla og Fréttablaðsins
- Kristján Ó Davíðsson, íþróttastjóri KLÍ.
- Lilja Björk Hauksdóttir, verkefnastjóri.
- Lilja Katrín Gunnarsdóttir, blaðamaður.
- Lúna Grétudóttir, yogakennari og þjálfari.
- Magnús Sigurðsson, lögfræðingur.
- Marcin Zembrowski, sérfræðingur í leyfismálum.
- Pálmi Jónasson, MBA/fréttamaður.
- Ragna Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri.
- Ragnheiður S Kjartansdóttir, verkefnastjóri.
- Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill.
- Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður.
- Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir, kynningarstjóri.
- Stefán Árni Pálsson, fjölmiðlamaður.
- Steingrímur Sigurgeirsson, stjórnsýslufræðingur.
- Þór Elíasson Bachmann, verkefnisstjóri.