„Ef við ætlum að verjast uppgangi nýfasismans, hvort sem það er til skemmri tíma eða lengri, þá verðum við að hafa hugföst þau lýðræðislegu gildi sem byggja á opinni, lýðræðislegri og upplýstri umræðu. Við megum ekki gleyma mikilvægi þess og við megum ekki láta eins og það gerist af sjálfu sér. Við eigum þegar við erum orðin fullorðin að geta gert greinarmun á staðreyndum og þvættingi. Staðan er sú að í hinum svokallaða vestræna heimi er það ekki svo skýrt.“
Þetta sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata, undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag og vék hann að brotthvarfi Bandaríkjaforseta úr embætti í þessu samhengi.
„Í dag lætur af störfum nýfasistinn og hrottinn Donald Trump sem forseti Bandaríkjanna. Það er mikið fagnaðarefni og þarf þá ekkert að styðja andstæðinga hans neitt sérstaklega mikið til þess að fagna því. Og þegar litið er til þess hvernig hann komst til valda þá er eitt alveg sérstaklega áberandi; og það er virðingarleysi fyrir staðreyndum, fyrir sannleikanum, fyrir því að það er munur á því hvað sé satt og hvað sé ósatt. Staðreyndir eru ekki viðhorf, skoðanir eru ekki rök í eðli sínu.“
Blessunarlega laus við mjög sýnilegan uppgang nýfasisma á Íslandi
Benti þingmaðurinn á að Íslendingar hefðu verið blessunarlega lausir við mjög sýnilegan uppgang nýfasisma að undanförnu og sagði hann að margt kæmi þar til.
„Hins vegar þegar litið er vestan hafs eða til Evrópu þá sést uppgangurinn nýfasismans mjög skýrt. Vandinn verandi sá að við erum orðin svo vön því að búa í frjálslyndum lýðræðissamfélögum – hér á þessu svæði og í nágrannalöndum okkar – að okkur dettur einhvern veginn ekki til hugar að þetta geti verið raunin. Að einhver voðaverk eins og þau sem voru framin á seinustu öld og eru hvað frægust og alræmdust að þau geti verið framin aftur,“ sagði Helgi Hrafn og bætti því að það gæti þó gerst ef „við gleymum því að það sé mögulegt“.