Óverðtryggðir breytilegir vextir verða lækkaðir hjá Gildi lífeyrissjóði um 20 punkta og verðtryggðir breytilegir vextir um 10 punkta. Breytingin mun taka gildi 5. febrúar næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum en breytingar voru gerðar á lánareglum Gildis á fundi stjórnar sjóðsins þann 21. janúar síðastliðinn.
Einnig mun veðhlutfall lána hækka úr 70 prósentum í 75 prósent. Eftir breytinguna fá sjóðfélagar grunnlán fyrir allt að 65 prósent af virði eignar í stað 60 prósent áður. Ofan á það geta sjóðfélagar fengið viðbótarlán upp í 75 prósent af virði eignar.
Í tilkynningunni kemur fram að síðustu mánuði hafi uppgreiðslur lána hjá lífeyrissjóðum verið talsvert umfram nýjar lánveitingar. Með breytingunni á lánareglum og vaxtakjörum nú vilji stjórn Gildis bregðast við þessari þróun.
Breytingin á veðhlutfalli lána hefur þegar tekið gildi en ný vaxtatafla mun taka gildi 5. febrúar næstkomandi, eins og áður segir.
„Landsmönnum hafa síðustu ár boðist lán á allt öðrum og betri kjörum en áður þekktist og það má að stærstum hluta rekja til sterkrar innkomu lífeyrissjóða á lánamarkaðinn á árunum 2015 til 2016. Síðustu mánuði hafa bankarnir náð að bregðast við, lækkað vexti á lánum sínum, og orðið ráðandi á fasteignalánamarkaði á ný. Með breytingunni nú vill Gildi bregðast við þessari þróun og bjóða upp á lán á kjörum sem eru að fullu samkeppnishæf.
Breytingin gefur kost á hærri lántöku sem sérstaklega mun koma fyrstu kaupendum íbúða, yngra fólki og tekjulágu, til góða. Reynslan sýnir að veðlán eru hagkvæmur eignaflokkur í eignasafni Gildis og þar fara saman hagsmunir sjóðfélaga og lántakenda,“ segir í tilkynningunni.