Konur fá 14 prósent lægri laun en karlar

Óleiðréttur launamunur kynjanna jókst lítillega árið 2019. Hann er meiri í ýmsum betur launuðum starfsstéttum og atvinnugreinum, til að mynda fá konur í fjármála-og vátryggingastarfsemi þriðjungi lægri laun en karlar.

Erfiðara virðist að brjóta glerþakið í betur launuðum störfum
Erfiðara virðist að brjóta glerþakið í betur launuðum störfum
Auglýsing

Þrátt fyrir að launa­munur kynj­anna hafi minnkað umtals­vert á síð­ustu tólf árum voru laun kvenna 14 pró­sentum lægri en laun karla árið 2019. Mun­ur­inn er meiri í betur laun­uðum störfum og sér­stak­lega áber­andi innan fjár­mála­geirans. 

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu um óleið­réttan launa­mun kynj­anna, sem reikn­aður er sem hlut­falls­legur mis­munur á tíma­kaupi karla og kvenna, miðað við kaup karla. Sam­kvæmt töl­unum jókst þessi munur lít­il­lega á milli 2018 og 2019, úr 13,6 pró­sentum yfir í slétt 14 pró­sent. 

Þessi munur er nokkuð minni en óleið­réttur launa­munur kynj­anna árið 2008, en þá nam hann rúmum 20 pró­sent­u­m. 

Auglýsing

Á þessum tólf árum hefur mun­ur­inn minnkað minnst hjá starfs­mönnum í flutn­ingum og geymslu en mest hjá starfs­mönnum í fræðslu­starf­semi. Þó er langt í land í sumum atvinnu­grein­um, til dæmis fá konur sem vinna í fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi 33% lægri laun heldur en karl­ar. 

Meiri munur í betur laun­uðum störfum

Svo virð­ist sem kjara­misvægið milli kynj­anna sé meira eftir því sem störfin eru betur laun­uð. Þannig fá kven­kyns stjórn­end­ur, sér­fræð­ingar og tæknar um fimmt­ungi lægri laun heldur en karl­kyns sam­starfs­fé­lagar þeirra, á sama tíma og mun­ur­inn er nær tíu pró­sentum hjá þjón­ustu­fólki, verka­fólki og ósér­hæfðu starfs­fólki. 

Meiri yfir­vinna og fleiri ofur­ríkir karlar

Sam­kvæmt Hag­stofu rað­ast hlut­falls­lega fleiri konur í lægra launuð störf, á meðan karlar eru lík­legri til að vera í betur laun­uðum störf­um, að hluta til vegna þess að þeir vinna meiri yfir­vinnu en kon­ur.  Hátt hlut­fall yfir­vinnu­stunda hefur áhrif til hækk­unar á tíma­kaupi þar sem yfir­vinnu­stund er að jafn­aði dýr­ari en dag­vinnu­stund. 

Hag­stofan bætir einnig við að þar sem mik­ill munur er gjarnan á launum á meðal þeirra allra rík­ustu og þar sem karlar eru mun lík­legri til að til­heyra þeim hópi gætu laun þeirra ýkt með­al­tal launa­mun­ar­ins að ein­hverju leyt­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent