Segir orkuskiptin gjörbreyta valdajafnvægi heimsins

Aukin áhersla á græna orkugjafa mun leiða til nýrrar tegundar stjórnmála þar sem vald stórra ríkja sem reiða sig á framleiðslu jarðefnaeldsneytis mun dvína, segir Ólafur Ragnar Grímsson í viðtali við Financial Times.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, fyrrum for­seti Íslands og for­maður Alþjóða­ráðs um stjórn­mál orku­skipta, segir að yfir­stand­andi orku­skipti úr jarð­efna­elds­neyti í græna orku­gjafa muni gjör­breyta valda­jafn­vægi á heims­vísu. Olíu­rík lönd missa valda­stöðu sína í heims­hag­kerf­inu þar sem önnur lönd þurfa ekki að reiða sig á þau til að verða sér úti um orku. 

Þetta kemur fram í við­tali Ólafs Ragn­ars við breska blaðið Fin­ancial Times, sem birt­ist fyrr í dag og var liður í umfjöllun þess um áhrif orku­skipt­anna á alþjóða­stjórn­mál. 

Sam­kvæmt umfjöll­un­inni eru skiptar skoð­anir um hvers konar áhrif grænir orku­gjafar muni hafa á vald­jafn­vægi milli ríkja heims­ins, en sumir telja að þeir verði ein­ungis notað sem tól ríkj­andi stór­velda til að halda völd­um. 

Auglýsing

Ólafur Ragnar telur hins vegar að orku­skiptin muni leiða til nýrrar teg­undir stjórn­mála: „Á meðan jarð­efna­elds­neyti fer smátt og smátt út úr orku­kerf­in­u...mun gamla stjórn­mála­skip­anin með stór­veldi sem orku­gjafa einnig fara á brott. Smátt og smátt mun vald þess­ara ríkja sem voru mik­il­væg í heimi sem reiðir sig á jarð­efna­elds­neyti, eða stórra fyr­ir­tækja líkt og olíu­fyr­ir­tækja, fjara út.“

Hins vegar segir Ólafur að enn verði stórar valda­blokkir í orku­málum á heims­vísu til þótt grænir orku­gjafar verði ráð­andi, en að þær verði ekki jafn valda­miklar og olíu­veldin eru núna. Þess vegna segir hann að ekki ætti að líta á lönd eins og Kína, sem hefur for­skot á mörg önnur ríki í umhverf­is­vænni orku­fram­leiðslu, sem ógn, þar sem erfitt verður fyrir landið að beita jafn­miklu valdi á önnur ríki og olíu­rík lönd hafa gert á und­an­förnum árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent