Lára Ómarsdóttir, fréttamaður Ríkisútvarpsins, sem að undanförnu hefur starfað í fréttaskýringarþættinum Kveik, hefur verið ráðin samskiptastjóri fjárfestingafélagsins Aztiq Fund. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá félaginu.
Fram kemur í tilkynningunni að Aztiq Fund hafi verið virkur langtímafjárfestir hérlendis og erlendis, meðal annars í fasteignum, lyfjaiðnaði, heilsueflingu og menningarauði. Á vef félagsins kemur fram að stærstu eignir þess séu í Alvogen, Alvotech og fasteignafélaginu Sæmundi.
Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen, sem einnig er stjórnarmaður í Aztiq Fund, segir sanna ánægju að fá Láru til starfa.
„Með því stígum við mikilvægt skref í þá átt að sameina fjárfestingar eigenda undir einum hatti og skapa þannig öflugt fjárfestingafélag sem mun verða virkur þátttakandi í uppbyggingu atvinnulífs og auðugs samfélags á Íslandi. Ég er sannfærður um að víðtæk reynsla Láru af fjölmiðlum muni nýtast í vitundaruppbyggingu félagsins og í samskiptum við hagaðila,“ er haft eftir Árna í tilkynningunni.
Þar segir að hlutverk Láru verði að halda utan um samskipti við meðal annarra yfirvöld, fjölmiðla og fjárfesta og byggja upp vitund á fyrirtækinu. „Hún mun einnig taka virkan þátt í að móta stefnu félagsins til framtíðar, en félagið hyggur á frekari fjárfestingar hérlendis og erlendis sem og að stækka fjárfestahópinn, sem nú þegar samanstendur af öflugum íslenskum og erlendum einstaklingum sem og alþjóðlegum fjárfestingarsjóðum,“ segir í tilkynningunni frá Aztiq Fund.
Lára hefur lengi starfað sem fréttamaður og dagskrárgerðarkona bæði í útvarpi og sjónvarpi. Hún lauk B.ed gráðu í íslensku og stærðfræði árið 2004, en áður starfaði hún meðal annars sem innkaupastjóri og sem framkvæmdastjóri knattspyrnufélags. Hún hefur skrifað eina bók, Hagsýni og hamingja.