Spáir náttúrulegu atvinnuleysi í lok árs

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands spáir því að atvinnuleysi verði undir fjórum prósentum í lok ársins í nýrri hagspá sinni. Spáin er mun bjartsýnni en sambærilegar greiningar Hagstofunnar og Seðlabankans.

Atvinnuleysi verður undir fjórum prósentum í lok ársins, gangi spár Hagfræðistofnunar eftir.
Atvinnuleysi verður undir fjórum prósentum í lok ársins, gangi spár Hagfræðistofnunar eftir.
Auglýsing

Gera má ráð fyrir að atvinnu­leysi nái hámarki í vor, en lækki svo fljótt eftir því sem líður á árið. Á síð­ustu mán­uðum árs­ins má svo búast við því að svo­kallað nátt­úru­legt atvinnu­leysi verði á vinnu­mark­aðn­um, þar sem innan við fjögur pró­sent hans verði án atvinnu. Þetta kemur fram í nýrri hag­spá Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, sem birt­ist í morg­un. 

Spáin gerir ráð fyrir að landið opn­ist fyrir ferða­mönnum í ágúst og að upp­taktur verði í efna­hags­líf­inu á mán­uð­unum þar á eft­ir. Þá er búist við að verð­bólgan lækki hratt á næstu mán­uðum og verði ríf­lega 2,5 pró­sent á milli jan­ú­ar­mán­aða 2021 og 2022, en það er í takt við spár Hag­stofu, Seðla­bank­ans og Íslands­banka. 

Hins vegar er mik­ill munur á spá Hag­fræði­stofn­unar og ann­arra grein­ing­ar­að­ila þegar kemur að vinnu­mark­aðn­um. Að mati stofn­un­ar­innar má gera ráð fyrir að atvinnu­leysi vaxi fram á vor og nái níu pró­sent­um, en falli í sumar og haldi svo áfram að minnka í haust ef landið opnar í ágúst.  

Auglýsing

Sam­kvæmt Hag­fræði­stofnun liggur svo­kallað „nátt­úru­legt atvinnu­leysi“ hér á landi á bil­inu þrjú til fjögur pró­sent. Búist er við að þessu bili verði náð á síð­asta fjórð­ungi þessa árs og að það hald­ist nokkuð stöðugt á fyrstu mán­uðum næsta árs. 

Að jafn­aði er búist við að atvinnu­leysi verði um 5,7 pró­sent í ár, en það var 5,5 pró­sent í fyrra sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­könnun Hag­stof­unn­ar. Þessi spá er þó mun bjart­sýnni en hjá Hag­stof­unni, þar sem búist er við 6,8 pró­senta atvinnu­leysi og hjá Seðla­bank­an­um, þar sem búist er við því að það muni ná 7,3 pró­sent­u­m. 

Lík­legt van­mat hjá Hag­stofu

Á síð­ustu mán­uðum hafa atvinnu­leysis­tölur Hag­stofu verið langt undir skráðu atvinnu­leysi hjá Vinnu­mála­stofn­un. Sam­kvæmt Hag­fræði­stofnun er meg­in­skýr­ingin á þessum mun sú að upp­lýs­ingar um atvinnu­lausa eru bjag­aðar í vinnu­mark­aðs­könnum Hag­stofu þar sem atvinnu­lausir svari síður spurn­ingum henn­ar. Þar af leið­andi má áætla að Hag­stofan van­meti atvinnu­leysi að öllum lík­ind­um. 

Hins vegar bætir Hag­fræði­stofnun við að Hag­stofan beitir sömu aðferðum og aðrar hag­stofur erlendis og lík­legt sé að þær stríði einnig við svip­aðan vanda. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent