Hæstiréttur Íslands komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið væri skaðabótaskylt gagnvart Eiríki Jónssyni vegna þess að hann var ekki skipaður í eitt af 15 embættum dómara við Landsrétt sem auglýst voru laus til umsóknar 10. febrúar 2017.
Rétturinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að Jón Höskuldsson, sem var heldur ekki skipaður í embætti dómara við Landsrétt á sama tíma og Eiríkur, þrátt fyirr að hæfisnefnd hafi metið þá á meðal 15 hæfustu umsækjenda, ætti rétt á 8,5 milljónum króna í skaðabætur auk vaxta vegna þessa. Jóni voru auk þess dæmdar ein milljón króna í miskabætur með dráttarvöxtum.
Íslenska ríkinu var auk þess gert að greiða málskostnað í báðum málunum.
Fjórir færðir af lista
Í aðdraganda þess að Landsréttur var settur á laggirnar, en hann hóf störf í byrjun árs 2018, þurfti að skipa 15 dómara við nýja millidómsstigið. Sérstök hæfisnefnd mat Eirík þá sjöunda hæfastan af þeim sem sóttu um og Jón var einnig á meðal 15 hæfustu að mati hennar. Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæfisnefndin hafði metið á meðal 15 hæfustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi samþykkti svo lista Sigríðar.
Auk þess komst Mannréttindadómstóll Evrópu að þeirri niðurstöðu í málinu að dómararnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sigríðar væru ólöglega skipaðir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið réttláta málsmeðferð. Í kjölfar þess að dómur Mannréttindadómstólsins féll þá sagði Sigríður af sér embætti dómsmálaráðherra
Tveir stefndu og vildu bætur
Þeir Eiríkur og Jón höfðuðu ekki sambærilegt mál og Ástráður og Jóhannes. Jón sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæstaréttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miskabætur vegna skipunar í Landsrétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjölfarið höfðaði Jón það mál sem dæmt var í í dag.
Jón krafðist þess að fá bætt mismun launa, lífeyrisréttinda og annarra launatengdra réttinda dómara við Landsrétt annars vegar og héraðsdómara hins vegar. Jón krafðist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár.
Eiríkur ákvað að fylgja í fótspor Jóns stefndi ríkinu. Hann er fæddur árið 1977 og átti því um 27 ár eftir á vinnumarkaði þegar skipað var í Landsrétt miðað við hefðbundinn eftirlaunaaldur.
Eirikur sótti aftur um stöðu dómara við Landsrétt og var skipaður í það embætti síðsumars 2019. Jón sótti sömuleiðis um lausa stöðu við Landsrétt í fyrra og var skipaður í september 2020.
Sinnti ekki rannsóknarskyldu
Í dómsorði Hæstaréttar í málum Eiríks og Jóns segir meðal annars að Sigríði hafi verið að gera tillögu til Alþingis um skipun annars eða annarra umsækjenda en þeirra sem dómnefnd hafði metið hæfasta, að því tilskildu að þeir fullnægðu almennum hæfisskilyrðum laganna. „Tillaga ráðherra um að víkja frá áliti dómnefndar og leggja til aðra umsækjendur en þá sem dómnefnd hafði metið hæfasta varð hins vegar að byggja á málefnalegum sjónarmiðum og vera reist á fullnægjandi rannsókn, samanburði og rökstuðningi fyrir breyttri tillögu um það hver eða hverjir umsækjenda væru að mati ráðherra hæfastir til að gegna dómaraembætti öndvert áliti dómnefndar. Að fenginni slíkri tillögu frá ráðherra væri það síðan hlutverk Alþingis að hafa eftirlit með því að tillaga ráðherra fullnægði þessum kröfum[...]Af hálfu gagnáfrýjanda hefur ekki verið gerð viðunandi grein fyrir því hvaða samanburður fór fram af hálfu ráðherra á aðaláfrýjanda og öðrum umsækjendum og hvernig innbyrðis mati á þeim var háttað, en dómnefnd hafði samkvæmt stigatöflu raðað aðaláfrýjanda í ellefta sæti yfir 15 hæfustu umsækjendurna. Þá hefur Hæstiréttur eins og í héraðsdómi greinir þegar hafnað sjónarmiðum um að þeir annmarkar hafi verið á dómnefndarálitinu að tilefni hafi verið fyrir ráðherra að víkja frá því.“
Af þessu leiði að vafi sé um það hvort fullnægjandi rannsókn málsins, og að öðru leyti lögmæt meðferð þess af hálfu ráðherra, hefði leitt til annarrar niðurstöðu um hæfni Eiríks og Jóns en dómnefnd hafði komist að. Það verði að túlka þeim í hag.