Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur falið þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna að rýna lög um Ríkisútvarpið ohf. og gera tillögur að breytingum sem líklegar eru til að sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins. Ráðgert er að þau ljúki störfum eigi síðar en 31. mars næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í dag.
Fulltrúar flokkanna eru Kolbeinn Óttarsson Proppé, fulltrúi Vinstri grænna en hann verður jafnframt formaður hópsins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, og Páll Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri.
„Mál þessi hafa verið mikið til umfjöllunar í samfélaginu og á Alþingi, meðal annars í tengslum við frumvarp ráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla og þau sjónarmið að umsvif Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði valdi samkeppnisskekkju sem eigi sinn þátt í bágri rekstrarstöðu einkarekinna miðla hér á landi,“ segir í tilkynningunni.
Fulltrúarnir munu einnig, samkvæmt ráðuneytinu, rýna núverandi skilgreiningu á hlutverki RÚV og meta hvort þörf sé á endurskilgreiningu í ljósi breyttra samfélagsaðstæðna, tækniþróunar og vilja stjórnvalda til að varðveita og þróa íslenskt mál.
Þeir munu leggja mat á hvernig Ríkisútvarpið geti sem best náð markmiði laga um stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi.
Þeir munu meta hvernig Ríkisútvarpið sinni best öryggishlutverki sínu, með upplýsingamiðlun um útvarp, öðrum boðleiðum og/eða samstarfi við aðra fjölmiðla og rýna gildandi kröfur og reglur um dreifikerfi Ríkisútvarpsins og hvort þörf sé á frekari uppbyggingu kerfisins eða grundvallarbreytingum á skipulagi dreifikerfismála.
Enn fremur munu þeir meta hvernig fjármögnun RÚV sé best komið, hvort núverandi fyrirkomulagi skuli haldið óbreyttu til framtíðar eða hvort breytinga sé þörf.
„Þau mun nýta þær athuganir og skýrslur sem gerðar hafa verið á síðustu árum um stöðu RÚV og fjölmiðla og kanna hvaða sambærileg vinna hefur farið fram vegna annarra almannaþjónustumiðla í Evrópu,“ segir í tilkynningunni.