Verðbólgan á Íslandi hærri en í flestum Evrópulöndum

Verðhækkanir hérlendis voru langt umfram þróun flestra annarra Evrópulanda í fyrra, en verðbólgan í síðasta mánuði var aðeins hærri í Tyrkland og Póllandi, samkvæmt nýjum mælingum Eurostat.

Einungis Tyrkir og Pólverjar máttu þola meiri verðhækkanir en Íslendingar í fyrra af löndunum sem Eurostat mælir
Einungis Tyrkir og Pólverjar máttu þola meiri verðhækkanir en Íslendingar í fyrra af löndunum sem Eurostat mælir
Auglýsing

Verð­bólgan á Íslandi var mest allra Norð­ur­landa í síð­asta mán­uði og í þriðja sæti fyrir öll Evr­ópu­lönd sem hag­stofa Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat, mæl­ir. Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá hag­stof­unni sem birt­ust á síðu hennar fyrr í vik­unn­i. 

Sam­kvæmt töl­unum náði verð­bólgan hér á landi 3,4 pró­sentum í jan­ú­ar. Þetta er rúm­lega tvö­falt meiri verð­hækkun milli jan­ú­ar­mán­aða en á hinum Norð­ur­lönd­un­um, en í Sví­þjóð, Nor­egi, Finn­landi og Dan­mörku var verð­bólgan að með­al­tali 1,5 pró­sent í síð­asta mán­uði.

Auglýsing

Með­al­verð­bólga meðal aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins var enn lægri, en hún náði 1,2 pró­sentum í jan­ú­ar, líkt og sjá má á mynd hér að neð­an. Þar sést verð­bólgan hjá öllum 33 Evr­ópu­löndum sem Eurostat mæl­ir, en á meðal þeirra stóð verð­vísi­talan nán­ast í stað í fyrra í níu löndum og lækk­aði í fimm lönd­um. 

Verðbólga í Evrópulöndum í janúar 2021.png 

Lang­mest var verð­hækk­unin í Tyrk­landi, en þar náði verð­bólgan 15 pró­sentum í síð­asta mán­uði. Ef það land, sem er ein­ungis að hluta til evr­ópskt, er tekið úr sam­an­burð­inum trónir Pól­land á toppi list­ans með 3,6 pró­sent verð­bólgu. Ísland er svo ekki langt á undan með sín 3,4 pró­sent í árs­byrj­un. 

Evr­ópu­sam­bandið mælir verð­bólgu sem tólf mán­aða breyt­ingu á sam­ræmdri vísi­tölu neyslu­verðs (HICP), sem er nokkuð frá­brugðin vísi­tölu neyslu­verðs (CPI)  sem Hag­stofa Íslands notar til að mæla verð­bólgu hér­lend­is. Því er verð­bólgan sam­kvæmt Eurostat nokkuð lægri en sam­bæri­legar mæl­ingar Hag­stofu.

Sam­kvæmt Hag­stofu náði verð­bólgan 4,3 pró­sentum í jan­úar en lækk­aði niður í 4,1 pró­sent í febr­ú­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent