Minni samdráttur í fyrra en áður var áætlað

Landsframleiðsla dróst saman um 6,6 prósent í fyrra samkvæmt nýútgefnum þjóðhagsreikningum Hagstofu. Þetta er nokkuð minni samdráttur en Seðlabankinn og Íslandsbankinn höfðu áætlað.

Einkaneysla Íslendinga dróst lítið saman, þrátt fyrir samkomutakmarkanir
Einkaneysla Íslendinga dróst lítið saman, þrátt fyrir samkomutakmarkanir
Auglýsing

Sam­dráttur í lands­fram­leiðslu náði 6,6 pró­sentum í fyrra að raun­gildi og 5,1 pró­senti á síð­asta árs­fjórð­ungi. Þetta kemur fram í þjóð­hags­reikn­ingum Hag­stofu Íslands sem birt­ust fyrr í dag. 

Þetta er nokkuð minni sam­dráttur en Seðla­bank­inn áætl­aði í síð­ustu pen­inga­málum, sem birt­ust síð­ast­lið­inn jan­ú­ar, en þar spáði bank­inn að sam­drátt­ur­inn í fyrra hefði náð 7,7 pró­sent­um. Sömu­leiðis áætl­aði Íslands­banki að sam­drátt­ur­inn hefði náð 7,9 pró­sentum í fyrra í síð­ustu þjóð­hags­spá sinni sem birt­ist í jan­ú­ar. 

Vægi ferða­þjón­ust­unnar rúm­lega helm­ing­að­ist

Sam­kvæmt Hag­stofu vó sam­dráttur í útflutn­ingi þyngst í þjóð­hags­reikn­ing­un­um, en hann dróst saman um rúm 30 pró­sent. Þessi sam­dráttur er að mestu leyti til­kom­inn vegna hruns í ferða­þjón­ust­unni hér­lendis í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins, en áætlað er að hlutur ferða­þjón­ustu í lands­fram­leiðslu hafi numið 3,5 pró­sent á árinu 2020 borið saman við 8 pró­sent árið 2019. 

Auglýsing

Á móti vegur þó að inn­flutn­ingur dróst einnig saman tölu­vert, eða um 22 pró­sent. Sam­dráttur í inn­flutn­ingi hefur jákvæð áhrif á lands­fram­leiðslu, þar sem hann merkir minna útstreymi fjár­magns úr land­i. 

Lít­ill sam­dráttur í einka­neyslu

Miklar tak­mark­anir á verslun og þjón­ustu vegna sótt­varn­ar­ráð­staf­ana leiddi ekki til mik­ils sam­dráttar í einka­neysl, en hann náði 3,3 pró­sent­um. Þetta er minni sam­dráttur en Seðla­bank­inn áætl­aði í síð­asta mán­uði, en hann gerði ráð fyrir 4,4 pró­senta sam­drætti í fyrra. 

Aukn­ing í nokkrum útgjalda­flokkum í einka­neyslu vó að veru­legu leyti upp mik­inn sam­drátt í öðrum, sam­kvæmt Hag­stofu. Þannig er til að mynda áætlað að einka­neyslu­út­gjöld vegna kaupa á hús­gögnum og öðrum heim­il­is­bún­aði hafi auk­ist að raun­gildi um 7,6% a árinu 2020 og útgjöld vegna kaupa á áfengi og tóbaki um 10,8%.

Fjár­fest­ing skreppur saman

Þrátt fyrir yfir­lýst áform rík­is­stjórn­ar­innar um fjár­fest­ing­ar­á­tak í fyrra dróst fjár­fest­ing hins opin­bera um 9,3 pró­sent á árinu. Þetta er meiri sam­dráttur en hjá einka­fram­tak­inu, en hann náði 8,7 pró­sentum á árinu. Sömu­leiðis dróst íbúða­fjár­fest­ing um 1,2 pró­sent. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent