Lögreglustjóri vill ekki tjá sig um símtöl Áslaugar Örnu til sín

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir ástæðu þess að hún vilji ekki tjá sig um símtöl dómsmálaráðherra eftir að Ásmundarsalsmálið kom upp vera þá að málið sé komið til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Halla Bergþóra Björnsdóttir.
Halla Bergþóra Björnsdóttir.
Auglýsing

Halla Berg­þóra Björns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vill ekki tjá sig að sinni um sím­töl dóms­mála­ráð­herra til sín á aðfanga­dag, í kjöl­far þess að Ásmund­ar­sals­málið svo­kall­aða kom upp. Ástæðan er sú að málið er komið til með­ferðar hjá stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is. 

Þetta kom fram í upp­hafi við­tals Fann­eyjar Birnu Jóns­dóttur við Höllu Berg­þóru í Silfri dags­ins á RÚV. 

Nýverið opin­ber­aði RÚV að Áslaug Arna Sig­­ur­­björns­dóttir dóms­­mála­ráð­herra hefði hringt tví­­­vegis í Höllu Berg­þóru á aðfanga­dag 2020 í kjöl­far þess að lög­­reglan hafði greint fjöl­miðlum frá því að „hátt­­virkur ráð­herra“ hefði verið staddur í sam­­kvæmi í Ásmund­­ar­­sal kvöldið áður, þar sem grunur er um að sótt­­varn­­ar­brot hafi verið framið. Umræddur ráð­herra reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­­son, for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins og fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. Áslaug Arna sagði í lið­inni viku við RÚV að sam­­töl hennar við lög­­­reglu­­stjór­ann hafi verið vegna spurn­inga sem hún hafði um verk­lag og upp­­lýs­inga­­gjöf. Að öðru leyti hafi hún ekki rætt umrætt mál við lög­­­reglu­­stjór­ann og „ekki haft afskipti af rann­­sókn þessa máls eða ann­­arra.“

Auglýsing
Nokkrum dögum síðar sagði Áslaug Arna við RÚV að sím­tölin hafi ekki verið mis­tök og að dag­bók­ar­færsla lög­regl­unnar hafi verið „sér­stök“.

Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður Pírata, fór fram á það í vik­unni við Jón Þór Ólafs­son, for­mann stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is, að Áslaug Arna kæmi á fund nefnd­ar­innar við fyrsta tæki­færi. 

Málið enn til með­­­ferðar hjá lög­­­reglu

Ásmund­­ar­sals­­málið snýst um að í dag­­bók lög­­regl­unnar að morgni aðfanga­­dags 2020 hafi komið fram að milli 40-50 manns hafi verið staddir í Ásmund­­ar­­sal á Þor­láks­­messu eftir að búið hafi verið átt að rýma sal­inn sam­­kvæmt sótt­­varn­­ar­regl­u­m. 

Í sam­­kvæm­inu voru fjar­lægð­­ar­­mörk og grímu­­skylda enn fremur ekki virt og ölvun gesta verið tals­verð. Fólk hefði jafn­­vel faðm­­ast og kysst í kveðju­­skyni eftir að sam­­kvæmið var leyst upp.

Á meðal gesta reynd­ist vera Bjarni Bene­dikts­­son. Hann sagði í við­­tölum eftir að málið komst í hámæli að hann teldi ekki ástæðu til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti vegna máls­ins. 

Þegar greint var frá því að for­m­­leg rann­­sókn væri hafin á sam­kom­unni, þann 30. des­em­ber í fyrra, sagði í til­­kynn­ingu frá lög­­­reglu að rann­­sóknin fæli meðal ann­­ars í sér að yfir­­­fara upp­­­­­tökur úr búk­­­mynda­­­vélum lög­­­­­reglu­­­manna með til­­­liti til brota á sótt­­­vörn­­­um. Rann­­sókn­inni lauk seint í jan­úar og málið var í kjöl­farið sent til ákæru­sviðs sem tekur ákvörðun um það hvort að sekt­­ar­­boðum verði beitt eða hvort ekki þyki ástæða til þess. Þar er málið enn til með­­­ferð­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent