Samkvæmt dagskrá Alþingis á Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, síðar í dag að mæla fyrir þingsályktunartillögu þrettán þingmanna Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um óréttmæti málshöfðunar Alþingis gegn ráðherrum og afsökunarbeiðni. Tillagan hefur tvívegis áður verið lögð fram án þess að hafa komist á dagskrá. Hún snýst um að þingmennirnir vilja að Alþingi álykti að „rangt hafi verið að leggja til málshöfðun á hendur ráðherrum vegna pólitískra aðgerða eða aðgerðaleysis, sbr. tillögu til þingsályktunar á 138. löggjafarþingi[...], að ranglega hafi verið staðið að atkvæðagreiðslu um tillöguna og að rangt hafi verið að samþykkja hana.“
Auk þess vilja þingmennirnir að Alþingi álykti að þeir fyrrverandi ráðherrar sem upphaflega þingsályktunartillagan beindist að, og sá ráðherra sem höfðað var mál gegn, verðskuldi afsökunarbeiðni „frá hlutaðeigandi aðilum.“
Tillagan sem þingmennirnir 13 vilja að verði ályktað um snýst um höfðun sakamáls vegna refsiverðrar háttsemi í embættisfærslur á hendur Geir H. Haarde, sem var forsætisráðherra Íslands í aðdraganda hrunsins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem var utanríkisráðherra og oddviti Samfylkingarinnar í ríkisstjórn, Árna M. Mathiesen, sem var fjármálaráðherra, og Björgvini G. Sigurðssyni, sem var viðskiptaráðherra. Tillaga um að höfða mál gegn Geir var samþykkt á sínum tíma með 33 atkvæðum gegn 30 í i september 2010. Tillaga um að höfða mál gegn hinum þremur var felld.
Núverandi ráðherrar á meðal þeirra sem samþykktu ákæruna
Á meðal þeirra sem samþykktu ákæruna á hendur Geir í þinginu í september 2010 voru nokkrir ráðherrar sem nú sitja í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, Svandís Svavarsdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Sigurður Ingi var raunar einn flutningsmanna þingsályktunartillögunnar um málshöfðunina gegn ráðherrum. Þau kaus Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, einnig með ákærunni.
Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni sem birt var í apríl 2010 að nokkrir íslenskir ráðherrar hefðu sýnt af sér vanrækslu í starfi í aðdraganda hrunsins. Þingmannanefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsluna komst að þeirri niðurstöðu í september 2010 að ákæra ætti fjóra fyrrverandi ráðherra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðsson, fyrir Landsdómi vegna þessarar vanrækslu.
Þegar alþingismenn kusu um málið varð niðurstaðan hins vegar sú að einungis Geir var ákærður. Nokkrir þingmenn Samfylkingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráðherrum Sjálfstæðisflokksins en hlífa sínum flokksmönnum.
Landsdómsmálinu lauk með því að Geir var fundinn sekur um einn ákærulið en þeir voru upphaflega sex. Honum var ekki gerð refsing. Geir kærði málsmeðferðina til Mannréttindadómstóls Evrópu. Það mál tapaðist í nóvember síðastliðnum.
Skipulagt eftir flokkspólitískum línum
Flutningsmenn segja í greinargerð að niðurstaða Landsdóms hafi sýnt að ekki hafi verið tilefni til ákæru, að ekki hefði verið gætt samræmis við beitingu laga um Landsdóm þar sem lögunum hefur ekki verið beitt í öðrum tilvikum er varða stjórnmálalegar ákvarðanir og aðgerðir sem stefnt hafa hagsmunum ríkisins í hættu.
Þá telja þeir að atkvæðagreiðsla um málshöfðun hafi borið þess merki þess að niðurstaða um það hverja skyldi ákæra „hefði annaðhvort verið tilviljanakennd eða skipulögð eftir flokkspólitískum línum“, og að lýðræðislegu stjórnarfari landsins standi ógn af því ef reynt sé að fá starfandi eða fyrrverandi stjórnmálamenn dæmda til fangelsisvistar vegna pólitískra aðgerða eða aðgerðaleysis „án þess að um hafi verið að ræða ásetning um brot“.
Ýmsar stjórnmálalegar stefnur og ákvarðanir, eða aðgerðaleysi, geti verið skaðlegar hagsmunum ríkisins án þess að ætlunin hafi verið að valda tjóni. „Slíkt álitamál beri að leiða til lykta í kosningum en ekki fyrir dómstólum.“