Segir Bjarna hafa viljað ráðið hver væri fulltrúi Viðreisnar í stjórn Íslandspósts

Formaður Viðreisnar segir fjármálaráðherra hafi losað sig við fulltrúa flokksins úr stjórn Íslandspósts, sem hafi veitt fyrirtækinu aðhald, og sett undirmann sinn úr fjármálaráðuneytinu inn í staðinn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir full­trúa flokks­ins í stjórn Íslands­pósts hafa gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að bæta rekstur félags­ins, verið gagn­rýn­inn og veitt aðhald. Hins vegar hafi Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skipt honum út fyrir und­ir­mann sinn í fjár­mála­ráðu­neyt­inu eftir að hafa beitt Við­reisn þrýst­ingi um að finna annan stjórn­ar­mann. 

Við­skipta­blaðið greindi frá því síð­ast­lið­inn föstu­dag að Thom­asi Möll­er, full­trúa Við­reisn­ar  í stjórn Íslands­pósts, hafi verið hent út úr stjórn félags­ins á aðal­fundi þess. Meiri­hluti stjórnar félags­ins hefur inni­haldið full­trúa frá rík­is­stjórn­ar­flokk­un­um, á meðan stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi skipt öðrum full­trúum á milli sín. Sam­kvæmt heim­ildum Við­skipta­blaðs­ins var þrýst á tvo flokka til að skipta út stjórn­ar­mönnum sín­um. 

Í stöðu­upp­færslu á Face­book greindi Þor­gerður Katrín frá því að Bjarni hafi viljað ráða því hver yrði full­trúi Við­reisnar í stjórn Pósts­ins. Þegar ekki var orðið við þeirri ósk og því haldið til streitu að Við­reisn myndi áfram skipa Thomas í stjórn, hafi honum verið hent út og und­ir­maður Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu settur inn í stað­inn.  

Auglýsing

Sam­kvæmt Þor­gerði Katrínu hefur Thomas sinnt stjórn­ar­setu sinni af alúð. Hann hafi gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að bæta rekstur Íslands­pósts og hag­ræða síð­ustu árin verið gagn­rýn­inn og veitt fyr­ir­tæk­inu aðhald í þágu gagn­sæ­is, sam­keppn­is­sjón­ar­miða, þjón­ustu og almanna­hags­muna. 

Enn fremur sagði hún það ekki hafa farið fram hjá neinum að það séu erf­ið­leikar við stjórnun Íslands­pósts. Þessi vanda­mál séu hins vegar á ábyrgð stjórn­enda og meiri­hluta stjórn­mála­flokka en skrif­ist ekki á einn full­trúa minni­hlut­ans á Alþingi. „Gamla Ísland var að hringja,“ bætti hún við. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent