500 milljarða dala „tæknibóla“ - Gæti orðið „verra en síðast“

Facebook_like_thumb.000.jpg
Auglýsing

Við erum núna inn í 500 millj­arða Banda­ríkja­dala „tækni­bólu“, sem er dæmd til að springa. „Þetta gæti orðið verra en síð­ast.“ Þannig er ritað í sept­em­ber hefti Vanity Fair en Nick Bilton, rann­sókn­ar­blaða­maður og rit­höf­und­ur, skrif­ar ítar­lega grein um fjár­fest­ingar í tækni­geir­an­um, einkum í Síli­kondaln­um. Hann segir í grein sinni að ýmis­legt bendi til þess að það gríð­ar­lega fjár­magn sem hafi leitað í ný tækni­fyr­ir­tæki, ekki síst eftir að snjall­símar fóru að hafa mikil áhrif það hvernig fólk notar tölvu­tækni í dag­legu lífi, muni vafa­lítið leita úr þess­ari „bólu“ áður en langt um líð­ur.

Bilton vitnar til umræðu sem eigi sér nú stað, ekki síst á meðal þeirra ráð­gjafa og fjár­festa sem eru virkir á net­inu. Nefnir hann Bill Gur­ley, fjár­festi og ráð­gjafa hjá fyr­ir­tæk­inu Bench­mark Capital, sem dæmi um mann sem hafi miklar efa­semdir um stöðu mála núna, enda sé mark­aðsvirði fyr­ir­tækja, sem hafi stutta rekstr­ar­sögu og að mörgu leyti óþekkt við­skipta­mód­el, oft með ólík­indum hátt. Fimm hund­ruð millj­arðar Banda­ríkja­dala er upp­hæð sem nemur 64 þús­und millj­örðum króna, sem er ríf­lega þrjá­tíu­föld árleg lands­fram­leiðsla Íslands.

Í umræðum á Twitter nefndi Gurley að mikið kæru­leysi ríkti í tækni­geir­anum gagn­vart stöðu mála, og vel sé raun­hæft að líkja stöð­unni við það sem blasti við árið 1999, þegar net­bólan sprakk með lát­um, með þeim afleið­ingum að hluta­bréfa­mark­aði hrundu og fjöl­mörg tækni­fyr­ir­tæki fóru á haus­inn. „Að halda því fram að við séum ekki inn í bólu, af því að staðan er ekki eins slæm og árið 1999, er eins og að halda því fram að Kim Jong-Un sé fínn af því hann sé ekki eins slæmur og Hitler.“

Auglýsing


Einn þeirra sem Bilton ræðir við í umfjöllun sinni, er Mark Cuban sem seldi vef­síðu sína, broa­dcast.com, fyrir 5,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, um 700 millj­arða króna, rétt áður en net­bólan sprakk árið 1999. Cuban segir engan vafa leika á því að staðan nú sé orðin sam­bæri­leg við það sem hún var þegar net­bólan sprakk, nema nú séu upp­hæð­irnar marg­falt hærri. Auk þess sjá­ist svipuð ein­kenni og síð­ast. Efa­semda­röddum um stöðu mála er illa tekið og sam­hengi milli rekstr­ar­stöðu og verð­miða sé nán­ast ósýni­legt.

Þá segir Cuban að þeir sem muni tapa mestu, þegar upp er stað­ið, séu þeir sem hafi fengið lán­aða pen­inga til að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem síðan ekki reyn­ist jafn traust og þau virt­ust vera.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None