„Áhöfnin á frystitogaranum Kleifabergi RE, sem Brim hf. gerir út, setti met í afla og aflaverðmæti í einni veiðiferð nú í maímánuði sem sennilega verður erfitt að slá. Á tuttugu og níu og hálfum degi veiddi skipið 1.900 tonn miðað við fisk upp úr sjó og aflaverðmætið nemur 736 milljónum króna,“ að því er fram kemur í Fiskifréttum í dag. Aflann fékk skipið í rússnesku lögsögunni í Barentshafi.
Í umfjölluninni kemur fram að í túrnum hafi Kleifabergið þurft að fara inn til Bátsfjarðar í Norður-Noregi til þess að millilanda, en í fyrradag var skipið á leið til Tromsö til löndunar og þaðan heldur áhöfnin heim til Íslands að halda upp á sjómannadaginn sem er á sunnudaginn.
Hér má sjá áhöfnina á Kleifabergi fagna, en myndin birtist í Fiskifréttum.
„Því má bæta við að frá áramótum hefur áhöfnin á Kleifaberginu fiskað fyrir rúma tvo milljarða króna. Geri aðrir betur á rúmlega 40 ára gömlu skipi,“ segir í Fiskifréttum.