91,6 prósent aðspurðra eru hlynntir kröfum um að hækka lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði í 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Starfsgreinasamband Íslands. Aðeins 4,3 prósent sögðust andvíg því að lágmarkslaun yrðu hækkuð í 300 þúsund krónur, en 4,1 prósent sögðust hvorki fylgjandi né andvíg.
67,1 prósent sögðust alfarið hlynnt kröfunni um að lágmarkslaun verði 300 þúsund. 14,8 prósent sögðust mjög hlynnt og 9,7 prósent frekar hlynnt.
Fólk var einnig spurt að því hver lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði ættu að vera miðað við fullt starf. Að meðaltali taldi fólk að lágmarkslaun ættu að vera 329 þúsund krónur. „Kröfur SGS, sem hyggst hrinda af stað fyrstu verkfallsaðgerðum sínum á morgun fimmtudag, ef ekki semst áður, virðast njóta breiðs og víðtæks stuðnings í samfélaginu,“ segir í tilkynningu Starfsgreinasambandsins um málið.
Stuðningur við kröfurnar er örlítið meiri hjá konum en körlum og konur nefndu líka að meðaltali hærri tölu þegar spurt var hver lágmarkslaun í landinu ættu að vera. Enginn munur var á svörum fólks eftir búsetu á landinu né heldur milli tekjuhópa.
"Þessar niðurstöður staðfesta þann meðbyr sem við höfum fundið í samfélaginu,“ er haft eftir Drífu Snædal, framkvæmdastjóra SGS. „Það er kominn tími til þess að lágmarkslaun dugi fyrir framfærslu og almenningur tekur undir með okkur í þeirri sjálfsögðu kröfu. Það er ánægjulegt að fá staðfestingu á því að við séum á réttri leið og svona afgerandi stuðningur gefur okkur byr undir báða vængi í þeim átökum sem framundan eru. Samtök atvinnulífsins verða að hlýða á kröfur okkar og samfélagsins alls. Það er í þeirra valdi að afstýra erfiðum og langdregnum átökum."
Könnunin var gerð dagana 16. til 26. apríl og 1450 voru spurðir í henni. Svarhlutfallið var 59,2 prósent.