96 létust áður en þeir fengu leiðréttingu

Tryggingastofnun hefur undanfarin ár endurskoðað mál örorkulífeyrisþega sem orðið hafa fyrir skerðingu á rétti sínum til örorkulífeyris og búið í öðru landi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Mál 1.397 einstaklinga eru eða hafa verið til skoðunar.

Tryggingastofnun Mynd: Skjáskot/Google
Auglýsing

Alls höfðu 637 ein­stak­lingar fengið leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls hjá Trygg­inga­stofnun (TR) þann 7. maí síð­ast­lið­inn og 536 ein­stak­lingar til við­bótar hafa fengið bréf tengt búsetu­leið­rétt­ingu. Vinnsla þeirra mála er hafin en nið­ur­staða liggur ekki fyr­ir.

Þetta kemur fram í svari félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, við fyr­ir­spurn frá Hall­dóru Mog­en­sen, þing­manni Pírata, um leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls örorku­líf­eyr­is­þega.

Trygg­inga­stofnun þurfti að end­ur­skoða og leið­rétta örorku­líf­eyri í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis vegna leið­rétt­ingar búsetu­hlut­falls ein­stak­linga sem búsettir hafa verið erlend­is. End­ur­skoðun búsetu­hlut­falls náði til 1. júní 2014 hjá örorku­líf­eyr­is­þegum sem hafa verið búsettir í öðru EES/EFTA landi.

Auglýsing

Leið­rétt­ing ekki hafin hjá 224 ein­stak­lingum

Í svari ráð­herra kemur jafn­framt fram að ekki sé hafin leið­rétt­ing hjá 224 ein­stak­ling­um. „Þar af eru 96 látnir en mál 128 ein­stak­linga sem eru búsettir erlendis en eiga ein­hver rétt­indi hjá TR eru í skoðun þar sem um er að ræða vafa­mál og því ekki unnt að hefja leið­rétt­ingu búsetu­hlut­falls,“ segir í svar­inu.

Enn fremur segir að frá 20. júní 2018 hafi 3.404 ein­stak­lingar fengið sam­þykkt 75 pró­sent örorku­mat. Þar af hafi 401 ein­stak­lingur ekki öðl­ast fullan rétt til greiðslna á grund­velli búsetu hér á landi en 40 þeirra fengið greitt miðað við hlut­falls­legan fram­reikn­ing. 213 ein­stak­lingar muni fá tíma­bundið greiddan örorku­líf­eyri miðað við hlut­falls­legan fram­reikn­ing á meðan leyst sé úr því við hvaða búsetu­hlut­fall skuli miða.

Skerð­ingin ekki í sam­ræmi við lög

Fyrir rúmum tveimur árum síðan hóf TR vinnu við end­ur­skoð­un­ina en stofn­unum gerði ráð fyrir að leið­rétt­ing­unni yrði lokið á árinu 2021.

For­saga máls­ins er sú að þús­undir ein­stak­lingar sem bjuggu erlend­is, en innan EES-­svæð­is­ins, höfðu orðið fyrir skerð­ingu á rétti sínum til örorku­líf­eyris vegna túlk­unar Trygg­inga­stofn­unar á ákveðnum ákvæðum í lögum um almanna­trygg­ing­ar.

Umboðs­­maður Alþingis komst hins vegar að þeirri nið­­ur­­stöðu sum­arið 2018 að slíkt væri ekki í sam­ræmi við lög. Í á­lit­inu segir að að lækkun greiðslu­hlut­­falls líf­eyris vegna búsetu erlendis hafi ekki verið í sam­ræmi við lög. Vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­ið lýsti í kjöl­farið þeirri afstöðu sinni að það væri sam­­mála nið­­ur­­stöðu umboðs­­manns Alþingis og óskaði eftir því að Trygg­inga­­stofnun end­­ur­­reikn­aði greiðslur til hlut­að­eig­andi ein­stak­l­inga og leið­rétti þær sem van­greiddar hafi ver­ið, ásamt vöxt­u­m.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent