Aðalfundur Icelandair Group samþykkti naumlega í dag tillögu stjórnar um nýja starfskjarastefnu og kaupréttarkerfi fyrir framkvæmdastjórn og lykilstarfsmenn. Einn stærsti hluthafi félagsins, lífeyrissjóðurinn Gildi, greindi frá því í gær að hann myndi greiða atkvæði gegn tillögunni.
Tillaga stjórnarinnar snerist um að setja á fót hvatakerfi hópinn. Markmiðið með innleiðingu hvatakerfisins var meðal annars sagt vera að draga úr líkum á að lykilstarfsmenn yfirgefi Icelandair Group með litlum fyrirvara.
Í kerfinu felst að hópurinn mun geta fengið allt af 25 prósent af árslaunum sínum í bónus í formi kaupréttar á hlutum í Icelandair Group. Fyrirhugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerfisins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tímabili. Miðað við markaðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir milljarðar króna. Hægt verður að innleysa umrædda kauprétti að þremur árum liðnum.
Samkvæmt upplýsingum frá Gildi, sem er fimmti stærsti hluthafi Icelandair Group, var það mat stjórnenda hans að tillagan um hvatakerfið væri of umfangsmikil og að sjóðurinn myndi því greiða atkvæði gegn öllu sem sneri að uppsetningu þess. Heimildir Kjarnans hermdu einnig að það hefði verið til umræðu hjá öðrum stórum hluthöfum að greiða atkvæði gegn tillögunni. Sú andstaða hefur þó ekki raungerst þar sem tillagan var, líkt og áður sagði, samþykkt. Það að tillagan hafi verið samþykkt með naumum meirihluta bendir þó til töluverðrar andstöðu, en 43 prósent hluthafa voru á aðalfundinum sem var rafrænn.
Töpuðu 13,7 milljörðum í fyrra
Icelandair Group tapaði 13,7 milljörðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Bandaríkjadölum. Þar af tapaði félagið 5,1 milljarði króna á síðustu þremur mánuðum ársins.
Rekstrartap á síðasta ári var 17,7 milljarðar króna, en endanlegt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæðar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekjufærsla vegna reiknaðra vaxta á vaxtalausri frestun á greiðslu skatta.
Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 milljarður króna, árið 2019 tapaði það 7,8 milljarðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 milljarðar króna. Því hefur samstæðan tapað yfir 79 milljörðum króna á síðustu fjórum árum.
Laun forstjóra hækkuðu um næstum 50 prósent
Einn lykilmannanna sem fær kaupauka- og kaupréttargreiðslur nú þegar bónuskerfið hefur verið samþykkt er Bogi Níls Bogason, forstjóri Icelandair Group.
Kjarninn greindi frá því í síðasta mánuði að hann hafi fengið 518 þúsund Bandaríkjadali í laun og hlunnindi á síðasta ári. Á árslokagengi ársins 2021 eru það 67,5 milljónir króna eða 5,6 milljónir króna á mánuði. Til viðbótar fékk Bogi Nils 119,6 þúsund Bandaríkjadali í lífeyrisgreiðslur, eða 15,6 milljónir króna á ofangreindu gengi. Það þýðir að laun, hlunnindi og lífeyrisgreiðslur hans á síðasta ári voru samtals 83,1 milljónir króna, eða rúmlega 6,9 milljónir króna að meðaltali á mánuði.
Laun Boga hækkuðu umtalsvert milli ára. Hann var með 355 þúsund Bandaríkjadali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þúsund Bandaríkjadali í lífeyrissjóðsgreiðslur frá félaginu. Þegar þessar tölur eru umreiknaðar í íslenskar krónur á árslokagengi síðasta árs þýða þær að laun og hlunnindi Boga voru 46,3 milljónir króna á árinu 2020, eða tæplega 3,9 milljónir króna á mánuði, og lífeyrissjóðsgreiðslurnar alls 9,9 milljónir króna. Samtals voru laun, hlunnindi og lífeyrissjóðsgreiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 milljónir króna miðað við árslokagengi 2021, eða 4,7 milljónir króna á mánuði.
Laun, hlunnindi og lífeyrissjóðsgreiðslur Boga hækkuðu því um 48 prósent í Bandaríkjadölum talið milli ára.
Kjarninn sendi fyrirspurn til Icelandair Group vegna málsins og óskaði eftir útskýringum á launahækkun forstjóra. Í svari upplýsingafulltrúa félagsins sagði að breytinguna megi „langmestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók forstjóri á sig 30 prósent launalækkun stærstan hluta ársins. Þess má geta í þessu samhengi að ársreikningur félagsins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. forstjóra eru greidd í íslenskum krónum. Meðalgengi íslensku krónunnar gagnvart USD styrktist á milli ára og ýkir það hækkunina í ársreikningnum.“
Gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal veiktist um 2,5 prósent á síðasta ári.
Hlutafjáraukningar í faraldrinum
Icelandair Group fór í nokkrar hlutafjáraukningar eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á. Félagið safnaði alls 23 milljörðum króna í útboði sem fór fram í september 2020, en það hefur átt í miklum rekstrarvanda um árabil sem jókst verulega þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir.
Icelandair Group gerði svo bindandi samkomulag við bandaríska fjárfestingarsjóðinn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flugfélaginu í fyrrasumar. Samkvæmt samkomulaginu greiddi Bain Capital 8,1 milljarð króna og eignaðist fyrir vikið 16,6 prósent hlut í Icelandair Group. Bain Capital átti 15,7 prósent hlut í Icelandair Group um síðustu áramót og var lang stærsti eigandi félagsins. Aðrir stórir eigendur eru íslenskir lífeyrissjóðir. Til viðbótar hafa verið sóttir nokkrir milljarðar króna og alls nemur umfang þess fjár sem Icelandair Group hefur sótt sér 33 milljörðum króna.
Þrátt fyrir mikinn taprekstur hefur hlutabréfaverð í Icelandair Group rúmlega tvöfaldast frá því að hlutabréfaútboðið í september 2020 fór fram. Hluthafar í árslok voru 15.287 og fjölgaði um 1.779 í fyrra.
Ekkert eitt fyrirtæki fékk meiri fyrirgreiðslu úr ríkissjóði vegna kórónuveirufaraldursins en Icelandair Group. Á meðal þess sem félagið fékk var ríkisábyrgð á lánalínu upp á 16,5 milljarða króna. Icelandair Group sagði upp lánalínunni á sama tíma og hugmyndir um hið nýja hvatakerfi voru gerðar opinberar.
Þá hefur Icelandair Group endursamið, af mikilli hörku, við helstu stéttarfélög starfsmanna sinna. Sagði meðal annars 95 prósent flugfreyja upp á meðan að á kjaraviðræðum við þær stóð. Eftir að þær kolfelldu kjarasamning var talað um að ráða fólk úr öðru stéttarfélagi.
Í ræðu sinni á aðalfundinum í dag sagði Bogi Nils að heildarskattspor Icelandair Group, sem felur í sér alla greidda skatta og gjöld til ríkis og sveitarfélaga vegna, líka vegna launa starfsmanna, hafi verið yfir 26 milljarðar króna. Þegar búið væri að draga frá það sem Icelandair fékk úr ríkissjóði vegna faraldursins væri þetta „fimmföld sú fjárhæð sem félagið nýtti sér í gegnum úrræði ríkisstjórnarinnar“.