Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru almennt jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem var lögð fyrir íbúa í öllum póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu dagana 19. – 30. mars s.l. Könnunin er liður í vinnu við endurskoðun á aðgerðaáætlun ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2020 sem nú stendur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu.
Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar í dag á málþingi í Hörpu en Maskína sá um framkvæmd og úrvinnslu könnnunarinnar. Aðeins 2,3% íbúa á höfuðborgarsvæðinu segjast vera neikvæð gagnvart ferðamönnum á höfuðborgarsvæðinu, þar af segjast 2% fremur neikvæð og 0,3% mjög neikvæð. Þetta hlutfall er 3,1% í póstnúmerinu 101 í miðborg Reykjavíkur þar sem ferðamannafjöldinn er mestur, eða litlu hærri en meðaltalið segir til um.
Þá telja 91,8% íbúa að erlendir ferðamenn á höfuðborgarsvæðinu séu fremur eða mjög vinsamlegir í samskiptum við íbúa. „Aðeins 0,7% telja þá óvinsamlega og 7,5% í meðallagi. Athyglisvert er að bera þessar tölur saman við hversu gestrisna íbúar telja sjálfa sig vera gagnvart erlendum ferðamönnum en 61,9% telja íbúa mjög eða fremur gestrisna. Þá segja 6,7% íbúa mjög eða fremur ógestrisna og 31,4% segja í meðallagi,“ segir í tilkynningunni.
„Þetta eru góðar fréttir því þetta sýnir að viðhorf okkar íbúanna er mun jákvæðara gagnvart ferðamönnum en margir hafa ef til vill óttast miðað við umræðuna,” segir Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu. „Niðurstöður könnunarinnar gefa okkur vísbendingar um þolmörk í samfélaginu og munu reynast mikilvægt innlegg í þá vinnu sem Reykjavíkurborg er að vinna um þessar mundir við endurskoðun á aðgerðaáætlun ferðamálastefnunnar til ársins 2020. Tilgangur þeirrar vinnu er einmitt að móta stefnuna með framsýn og skynsemi að leiðarljósi,” segir Einar.