Forsætisráðherra Grikklands fundar með Pútín, degi fyrir 450 milljóna endurgreiðslu

h_51878001-1.jpg
Auglýsing

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, er nú kom­inn til Moskvu til við­ræðna við Vla­dimír Pútín Rúss­lands­for­seta. Grikkir, sem eiga nú í erf­iðum við­ræðum um fjár­mögnun rík­is­ins við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, hafa und­an­farið átt í vin­gjarn­legum sam­skiptum við Rússa. Leið­tog­arnir tveir funda nú.

Þessum sam­skiptum hefur verið illa tekið innan ESB, eins og Grikkir hafa búist við og jafn­vel ætl­ast til. Þeir hafa rætt um mögu­leg lán frá Rússum í stað áfram­hald­andi samn­inga við ESB og AGS, en sér­fræð­ingar hafa bent á að miðað við þau fjár­hags­vand­ræði sem Rússar eru sjálfir í yrðu lán frá þeim lík­lega mjög tak­mörk­uð. Grískur emb­ætt­is­maður sem Guar­dian ræddi við í morgun segir að ekki verði óskað eftir fjár­hags­að­stoð frá Rússum á fund­inum í dag.



Fyrir ferð sína til Moskvu gagn­rýndi Tsipras meðal ann­ars efna­hags­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna gagn­vart Rúss­landi, en þeim hefur verið beitt vegna fram­ferðis Rússa í Úkra­ínu og inn­limunar Krím­skaga í Rúss­land. Leið­tog­arnir tveir munu lík­lega ræða stirð sam­skipti Rússa við ESB á fundi sín­um.

For­seti Evr­ópu­þings­ins, Martin Schulz, hefur varað Tsipras og ráða­menn í Grikk­landi við því að brjóta gegn við­skipta­þving­unum ESB. „Grikkir krefj­ast sam­stöðu og njóta mik­illar sam­stöðu frá Evr­ópu­sam­band­inu. Við getum því beðið um sam­stöðu frá Grikkjum og að þessi sam­staða verði ekki rofin ein­hliða með því að þeir dragi sig út úr sam­eig­in­legum úrræð­u­m,“ sagði hann við þýska blaðið Muenchner Merk­ur.

Eiga að borga 450 millj­ónir evra á morgun



Tíma­setn­ingin á ferða­lagi Tsipras er áhuga­verð, en Grikkir eiga að borga af láni frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum á morg­un. Afborg­unin sem á að greiða á morgun nemur 450 millj­ónum evra, eða rúm­lega 66 millj­örðum íslenskra króna. Yanis Varoufa­kis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, hefur lofað því að við þessa greiðslu verði staðið á réttum tíma. Hann fund­aði með Christine Lag­ar­de, fram­kvæmda­stjóra AGS, í Was­hington fyrr í vik­unni. Hann sagði að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn væri til­bú­inn til þess að sýna Grikkjum skiln­ing og sveigj­an­leika.

Grikkir hafa ekki fengið fjár­magn frá ESB og AGS síðan í ágúst í fyrra. Tals­verðar líkur eru á því ef ekk­ert ger­ist að ríkið hætti að geta staðið í skilum um miðjan mán­uð­inn.

Á mánu­dag­inn greindu grísk stjórn­völd frá því að þau hefðu í fyrsta sinn reiknað út hversu mikið þau teldu að Þjóð­verjar skuld­uðu í stríðs­skaða­bætur vegna seinni heims­styrj­ald­ar­inn­ar, og að sú upp­hæð nemi 448 millj­örðum evra. Þjóð­verjar hafa vísað þessu á bug og segja að málið hafi verið útkláð fyrir löngu síð­an. Efna­hags­ráð­herr­ann Sig­mar Gabriel sagði það heimsku­legt að tengja þessi tvö mál sam­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None