Adolf: „Vonandi koma svona tímar aldrei aftur“

adolfgud.jpg
Auglýsing

„Þetta eru búnir að vera miklir anna­tímar og um margt merki­leg­ir. Mig óraði ekki fyrir því þegar ég tók við sem for­maður (LÍÚ), að banka­kerfið myndi hrynja með til­heyr­andi upp­lausn og erf­ið­leik­um. Von­andi koma svona tíma aldrei aft­ur,“ segir Adolf Guð­munds­son, frá­far­andi for­maður Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna, en hann mun form­lega hætta sem for­maður á aðal­fundi félags­ins 31. októ­ber næst kom­andi.

Adolf segir und­an­farin sex ár, þar sem hann hefur verið for­mað­ur, hafa verið merki­lega lífs­reynslu en sjáv­ar­út­veg­inum íslenska hafi þó tek­ist að sýna styrk við erf­iðar aðstæð­ur. Mik­ill tími hafi farið í umræður um kerf­is­breyt­ing­ar, veiði­gjöld og ýmis­legt sem teng­ist ytra umhverfi sjáv­ar­út­vegs­ins, á meðan mörg fyr­ir­tæki hafi verið að berj­ast í erf­iðu rekstr­ar­um­hverfi, á meðan betur gekk hjá öðr­um. „Þetta hefur verið mjög anna­samur tími, en skemmti­leg­ur. Í það minnsta oft­ast nær,“ segir Adolf.

Adolf, sem er búsettur við Tún­götu á Seyð­is­firði, seg­ist vel geta hugsað sér að sinna lög­fræði­störfum þegar hann hættir hjá LÍÚ og einnig hjá fyr­ir­tæk­inu Gull­bergi ehf. en Síld­ar­vinnslan keypti það fyrir skömmu. Þar hefur Adolf verið fram­kvæmda­stjóri og einn hlut­hafa árum sam­an. Hann vill ekki gefa upp kaup­verð­ið, segir það trún­að­ar­mál, en að hann hafi lagt áherslu á að það við söl­una að starf­semin yrði áfram á Seyð­is­firði og að starfs­fólkið byggi við öryggi og stöð­ug­leika í tengslum við við­skipt­in. „Ég get alveg hugsað mér að sinna lög­fræði­störfum og ýmsu sem þeim teng­ist, en mínum störfum hjá Gull­bergi er ekki lokið enn.“

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None