Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar hættir og verður kynningarstýra UN Women

Aðstoðarmaður formanns Viðreisnar til fjögurra ára hefur látið af störfum og tekur við starfi kynningarstýru UN Women á Íslandi – „Elsku Þorgerður - takk fyrir allt.“

María Rut Kristinsdóttir.
María Rut Kristinsdóttir.
Auglýsing

María Rut Krist­ins­dóttir hefur látið af störfum sem aðstoð­ar­maður Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dótt­ur, for­manns Við­reisn­ar, og tekið við starfi kynn­ing­ar­stýru UN Women á Íslandi.

María Rut hefur verið aðstoð­ar­maður Þor­gerðar í rúm­lega fjögur ár. Í færslu á Face­book segir María Rut að síð­ustu fjögur ár hafi verið „of­boðs­lega lær­dóms­rík en fyrst og fremst fárán­lega skemmti­leg.“

Auglýsing

María Rut segir nýtt tæki­færi hafa bankað upp á sem hún gat ekki hafn­að. Sem kynn­ing­ar­stýra UN Women mun hún leiða starf kynn­ing­ar­mála og kynn­ing­ar­sviðs sam­tak­anna, hafa umsjón með átaks­her­ferðum og sam­skiptum við fjöl­miðla.

Áður en María Rut tók við starfi aðstoð­ar­manns Þor­gerðar Katrínar starf­aði hún sem sér­fræð­ingur á sviði mann­rétt­inda­mála á skrif­stofu mann­rétt­inda- og sveita­fé­laga í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og leiddi þar sam­ráðs­hóp ráð­herra um með­ferð kyn­ferð­is­brota innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins. Hún kom einnig að ýmsum öðrum verk­efnum innan inn­an­rík­is- og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, þar með talið full­gild­ing­ar­ferlis Ist­an­búls­samn­ings­ins. María hefur jafn­framt verið virk í ýmsum félags­störfum m.a. sem for­maður Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands, tals­kona Druslu­göng­unnar og vara­for­maður Sam­tak­anna '78.

Í færslu sinni þakkar María Rut Þor­gerði fyrir sam­starf­ið. „Og elsku Þor­gerður - takk fyrir allt. Traust­ið, sam­vinn­una, áskor­un­ina og vin­átt­una. Ég sé þig á dans­gólf­inu á Kíkí“

Sumir dagar marka kafla­skil og í dag er einn slíkur hjá mér. Eftir meira en fjög­urra ára sam­starf með elsku Þor­gerð­i...

Posted by María Rut Krist­ins­dóttir on Tues­day, March 1, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki