Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur ekki tilefni til að leggja niður gistináttaskatt til frambúðar. Þetta kemur fram í minnisblaði sem ráðuneytið hefur sent Alþingi með samantekt um umsagnir sem bárust um bandorm vegna fjárlagafrumvarps ársins 2022 og viðbrögð þess við þeim.
Í bandorminum – frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlagafrumvarps næsta árs – er lagt til að gistináttaskattur, sérstakt gjald sem leggst ofan á hverja selda einingu næturgistingar, verði ekki innheimtur fyrr en árið 2024.
Skatturinn var fyrst tekinn upp árið 2012 og hefur þann tilgang að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Skatturinn er nú 300 krónur fyrir hverja selda einingu næturgistingar á Íslandi. Áður en kórónuveirufaraldurinn skall á í upphafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatturinn skilaði yfir 1,2 milljörðum króna í ríkissjóð.
En svo kom veiran og lét á sér kræla. Skatturinn var felldur niður tímabundið í einum af fyrstu aðgerðapökkunum til þess að mæta efnahagslegum áhrifum veirunnar. Skatturinn átti hins vegar að óbreyttu að taka gildi á ný þann 1. janúar 2022, en það mun ekki gerast, samkvæmt fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar.
Ríkið verður af 1,9 milljörðum næstu tvö ár
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) lögðu til í umsögn sinni um frumvarpið að gistinátaskattur yrði felldur niður til frambúðar.
Í umsögn samtakanna sögðu þau að engin rök mæli með endurupptöku skattsins. „Gistináttaskattur er slæm leið til innheimtu gjalds af ferðamönnum af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess hve ójafnt hann leggst á seljendur gistingar og skekkir því samkeppni. Af sömu ástæðum leggst gistináttaskattur einnig ójafnt á ferðamenn og uppfyllir því alls ekki markmið löggjafans með álagningu skattsins.“
í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að samhliða endurreisn ferðaþjónustunnar verði fyrirkomulag gjaldtöku í greininni tekið til skoðunar. „Horft verði til þess að breikka skattstofninn og tryggja jafnræði aðila á markaði. Þá verði unnið að breytingum á fyrirkomulagi gistináttaskatts í samvinnu við greinina og sveitarfélögin með það að markmiði að sveitarfélögin njóti góðs af gjaldtökunni. Með vísan til þessa og þar sem lögð er til framlenging á niðurfellingunni um tvö ár í frumvarpinu telur ráðuneytið ekki tilefni til frekari breytinga að svo stöddu.“